Útskrift og San Fran

Hæ, hæ :)

Núna er mín loksins útskrifuð og stolt yfir að hafa lifað útskriftarathöfnina af í 30 stiga hita og sól. Veðrið var búið að vera fínt dagana á undan en útskriftardagurinn (sem svo skemmtilega vildi til að er afmælisdagur Ömmu Þóru!) var heitasti dagurinn í ár. Ég sat því og svitnaði í svörtu útskriftarskikkjunni með úskriftarhattinn. Það var samt eftirminnileg upplifun að mæta og ég lofa að setja inn mynd næstu helgi þegar ég kem aftur til Jersey.

Núna er ég stödd í útskriftarferð með mömmu og pabba í San Francisco. Mikil rólegheit, rölt og góður matur. Fyrsta daginn fékk ég þó kuldasjokk enda bara íslenskt sumar hér, 10 gráður og rok (!) Ég splæsti því í kuldajakka og hef haft það gott síðan :)

Dagskráin so far…
Laugardagur: 6 tíma flug frá Jersey + ótal tímar í ferðir til og frá flugvelli. Ég svaf heila 10 tíma eftir það ferðalag. Kannski spilar líka inn í að sofa loksins í góðu rúmi, en rúmin sem við Angelien keyptum á sínum tíma eru svo hörð að Angelien valdi oftar en ekki að sofa frekar á sófanum (!)

Sunnudagur: Fylgdumst með Suður-Amerísku Carnivali í spænska hverfinu. Sá mann lamin í strætó og ákvað að halda mig í öruggu hverfunum framvegis…. Nóg um það. Fór í túristahöfnina Pier 39 og í 4víddar tívolí tæki (já, ég er krakki í mér!)

Mánudagur: Rölt um Kínahverfið og miðbæinn. Kíkt í nokkrar búðir… Kínahverfið hér er víst það stærsta í USA

Þriðjudagur: Leigðum bíl til að keyra upp í víndalinn Napa. Vorum hins vegar ekki í neinu drykkjustuði og keyrðum því frekar um til að skoða náttúruna, vínekrurnar sjálfar og stoppuðum meðal annars í Old Faithful Geyser. Hann var að sjálsögðu lítill og asnalegur í samanburði til aðal geysinn í Haukadal!

Sem sagt brilliant frí. Planið er að hlaða batteríin fyrir Íslandsförina! :)

Fyrir þá sem að vilja ná í mig þessa vikuna (sms eða símtöl) þá er ég með gemsann á mér: 1-551-998-2214.
Muna bara að California er 8 klst. á eftir Íslandi í tíma :)

Knús til allra,
Þóran

4 Responses to “Útskrift og San Fran”


  1. 1 Angelien May 30th, 2007 at 12:45 pm

    Hæ skal vera fyrst til að kommenta núna…:) Gott að það er gaman hjá ykkur í San Francisco, bara betra veður hér á Íslandi hmmmmm…bið heilsa mömmu þinni og pabba…finnst honum ekki bara stuð í USA?:)
    Já blái sófinn klikkaði aldrei…ósjaldan sem ég skreið fram í hann um miðja nótt þegar ég meikaði ekki rúmið…hehe og þú hélst alltaf að ég væri í fýlu híhí…;)
    Heyrðu það er afmæli hjá Andreu á laugardaginn þegar þú kemur svo við kíkjum saman er þaggi…?:)Skal meira að segja bjóða upp á næturbita á eftir..;)
    Hlakka til að sjá þig roomy!:)

  2. 2 Þóran sjálf Jun 1st, 2007 at 11:08 am

    Angie: Mamma og pabbi í miklu stuði hér í Ameríkunni. Ég skila kveðjunni :) Hlakka til að sjá þig :)

  3. 3 Steinunn mágkona Jun 22nd, 2007 at 2:59 am

    Mér finnst kominn tími á smá uppdate á því sem er að gerast hjá þér. Ég hitti þig nú bara nokkrum sinnum í viku og því gæti ýmislegt farið framhjá mér.

  4. 4 Ásdís Jun 23rd, 2007 at 11:50 am

    sammála síðasta ræðumanni;)

Leave a Reply