Washington DC í sól og blíðu

img_02611.JPG

Ég féll alveg fyrir Washington. Spurning um að redda sér bandarískum ríkisborgararétti og láta kjósa sig á þing…
Verst hvað bandarískir þingmenn hafa almennt slæmar skoðanir (!)
En borgin er falleg og hreint ótrúlega hrein og fín. Það var líka sól allan tímann og ég borðaði góðan mat (pasta, steik, sushi og hvítvín) , sem að er auðvitað það skemmtilegasta við ferðalög.

Fyrst var keyrt til Washington, og þar skoðuð helstu mannvirki og svo á leiðinni heim var stoppað í Las Vegas okkar austurstrandarmanna: Atlantic City, þar sem að ég prófaði að “gambla” í fyrsta skipti.
Ég tapaði 3svar og hætti.. og ákvað að ég væri heppnari í ástum en spilum…

Á morgun verður útskriftin mín haldin. Mamma og pabbi eru mætt á svæðið og verða vonandi upp í stúku með “áfram Þóra” fánann…

Knús til allra,
Þóra

3 Responses to “Washington DC í sól og blíðu”


  1. 1 Ásdís May 26th, 2007 at 10:51 am

    Já það kom mér líka á óvart hversu skemmtileg D.C. er! Þú verður nú að setja mynd af þér hérna í útskriftardressinu:)

  2. 2 Þóran sjálf May 27th, 2007 at 10:03 pm

    Pabba tókst að gleyma myndavélinni heima í Jersey… en ég lofa að setja inn myndir þegar ég kem aftur heim frá San Fransisco :)

  3. 3 Berglind May 28th, 2007 at 8:26 am

    Hæ sæta! Hef víst ekkert getað náð á þig þar sem þú ert ekki heima. Ég vildi nú bara óska þér innilega til hamingju með útskriftina, Bravó fyrir þér!!:) Þú sendir mér kannski sms þegar þú kemur til baka svo ég geti bjallað í þig. Skemmtu þér svaka vel í San Fransisco! Hlakka svo til að sjá þig fljótlega…knús og kiss frá Berglindi:)

Leave a Reply