Í gærkvöldi skilaði ég inn lokaritgerðinni minni. Ef að prófessorinn samþykkir hana er ég því loksins búin með 6 ára háskólanám (5 ár í verkfræði og 1 ár í kennararéttindanámi). Ef ég bæti við 14 ára grunn og menntaskóla kemur því í ljós að ég er búin að vera heil 20 ár í skóla.
Þetta er sérstaklega glæsilegt í ljósi þess að ég er ennþá 22ára…
Í gærkvöldi fór ég út að borða með Angelien og mömmu hennar. Rauðvín og amerískur hamborgari klikkar aldrei. Reyndar bað ég um salat í forrétt en fékk hálfan kálhaus með “balsamik vinegar”. Furðulegasti forréttur ever…
Þær fara heim í dag og vonandi gengur sú ferð vel
Sjálf er ég á leið til Washington í helgarferð.
Gleðilega kosningavöku! (fyrst að eurovision klúðraðist víst…)
Knús,
Þóran
Til hamingju með að vera búin að skila öllu inn. Mér finnst nú enn skrítnara að þú skulir strax vera orðin 22 ára ef það er haft í huga að ég sem er móðir þín er ennþá bara 29 ára (eða var það kannski 39 ára eða……….!). Skemmtu þér vel í Washington. Vonandi hittir þú ekki Bush!
kjartanlega til hamingju frænka.
hmm, hvað ætli ég sé orðinn gamall?
Hjartanlegar hamingjuóskir með lokaskil! Hlýtur að hafa verið góð tilfinning og notalegt spennufall!
Góða skemmtun í Washington!
Já vonandi verður kosningavakan gleðileg og þessi afstyrmi loksins kosin burt!!
Kveðja Atli
Til hamingju!
Skilaðu kveðju til Bobby Sands, eina sósíalistans á Bandaríkjaþingi - ef þú hittir hann á förnum vegi í Washington.
Kv,
Stebbi
Til hamingju með að vera búin!
Vúhú! Til hamingju!
Takk fyrir hlýjar kveðjur!