Í gær kom skóla-lögreglan upp á skrifstofuna mína í skólanum. Það hvarf nefnilega skurðhnífasett úr eldhúsinu nóttina áður. Ég kippti mér ekkert alvarlega upp við þetta enda geri ég bara ráð fyrir að einhver á skrifstofunni hafi verið að flytja og því vantað fallegt sett í nýja eldhúsið…
Á hinn boginn er furðulegt (og pínku scary?) að einhver á skrifstofunni hafi ákveðið að stela öllum skurðhnífunum en skilja eftir allar tölvurnar, flatskjáina og myndvarpana…
Að öðru leyti er lítið að frétta. Hef bara nóg að gera við að klára vinnu og skóla. Angelien og mamma hennar gista hjá mér núna í örfáa daga á leið til Íslands, og svo koma mamma og pabbi bráðlega í heimsókn til að sjá mig útskrifast.
“Útskriftar-hempan” sem að ég fékk er aðeins of stór svo að ég geri ráð fyrir að þurfa að kaupa mér mjög háhælaða skó til að detta ekki á útskriftardaginn…
…ég sé því fram á að gnæfa enn meira en vanalega yfir hina Indverjana…
Mkv,
Þóra
ohh og við sem pældum svo mikið í hvað hún ætti að vera stór! útreikningarnir milli cm og tomma hafa e-ð klikkað hjá okkur:S
sendirðu ekki öllum á klakanum boðskort?
Ásdís: Jááá, maður hefði nú haldið að 2 vélaverkfræðingar ættu að geta reiknað sig á milli cm og tomma klakklaust…
Halli: Allur klakinn er hér með boðinn velkominn í útskrift mína 24.maí. Hugsanlegt að ég haldi svo svona “mini-útskrift” þegar ég kem heim, fyrir hina óheppnu sem að komast ekki við “aðal”!