Seinustu dagar hafa verið góðir. Allt í lagi að minnast á nokkra hluti…
- Ég fór í vínsmökkun seinustu helgi. Alltaf gaman í vínsmökkun. Ég smakkaði meðal annars hvítvín frá New Jersey og Austurríki, en hvorugt vissi ég að væri til… Slapp bæði fyrir horn…
- Angelien og mamma hennar stoppuðu hjá mér í 2 daga á leið til Kalda landsins… Þar er reyndar víst komin sól svo að ég vona að þær hafi það gott í blíðunni!
- Góðverk vikunnar var að fylgja gamalli konu heim þar sem að hún var ekki með regnhlif. Við áttum merkilegar samræður:
Gömul kona: You are a nice girl. Do you come from the city? Nice people always live in the city
Ég: No, I live here actually. But I come from Iceland.
Gömul kona: Iceland?
Ég: Europe….
Gömul kona: Europe?
Ég: Huuhh… England…
Gömul kona: Ahhh… the mountain people! I like the mountains! The mountain people is nice. So, how long have you lived in the city?
- Ég er búin að ákveða að flytja til Íslands í byrjun júní. Þetta var nokkuð erfið ákvörðun því að mér líður vel hér úti, en ákvað að það væri komin tími á að koma til Íslands, amk í einhvern smá tíma. Þið getið sem sagt farið að telja niður dúllurnar mínar
- Þegar ég sagði leigusalanum mínum að ég væri að flytja út hrissti hún bara höfuðið og sagði: “You girls are always travelling!”.
Svo brosti hún og sagði: “My granddaughter likes the music you listen to…” (sem að kemur mér ekki á óvart því ég og 12 ára stelpur hlustum vanalega á svipaða tónlist) “can you talk to her for me and tell her to stay in school?
Ég: Huuhh… Me?
Leigusali: Yes, I am always telling her that she will never find a husband if she does not go to school….
- Ég datt niður stigann heima heima hjá mér og er núna með 20cm marblett á mjöðminni. Ekkert bikini á næstunni… Ég er líka með 6 stungur á handleggnum. Gaman að flugurnar séu vaknaðar. Ég er einstaklega vinsæl meðal þeirra….
- Hér er svo komið þetta fína veður. Ég verð þó ekki mikið var við veðrið enda að mestu inni að klára vinnuna mína (ég vinn út mánuðinn) og klára ritgerðina sem að hópurinn minn á að skila May 11th.
- Í seinasta tíma fjallaði prófessorinn minn (fyrrverandi yfirhershöfðingi) um leiðtoga. Þar kom eftirfarandi fram:
Prófessor: “I came up with this model for leaders: Vision, numbers’ skills and people’s skills are the 3 things that a leader must have. Roosevelt, Churchill and Reagan were the best presidents in the history of US. They had all those 3 things. So did Sharon, which I know personally (!), but he is unfortunately in a coma ride now.”
Nemandi: “What about President Bush? He has none of these 3 things. Right?”
Prófessor: “Well… You may argue that he is not good with numbers… But he’s determined…He is a fighter. I have to give him that!”
Nemandi: “What about Fidel Castro?”
Prófessor: “Fidel Castro?I don’t know! He may have some of those things, I do not know. But… we’re not talking about dictators here! The model does not take moral issues into account….!”
- Farin að vinna. Vonast til að heyra í sem flestum í prófatörninni ![]()
Mér leiðist!
Knús,
Þóra
Það var gaman að heyra í þér í gær! Hlakka til að fá þig heim í júní:) Jibbí, jibbí!!
Vona að sá sem hellti víninu í glösin hafi a.m.k. verið ögn kurteisari en gellan á Curtis;)
Ásdís: hahaha, já aðeins!
Ég var í skyrtu núna en ekki stuttermabol. Spurning hvort að það hafi skipt máli?
Það verður gaman að sjá þig þegar þú kemur aftur heim á klakann!
Gangi þér vel með ritgerðina! Ekki gleyma að kjósa (vonandi hefuru tíma)!