Archive for May, 2007

Útskrift og San Fran

Hæ, hæ :)

Núna er mín loksins útskrifuð og stolt yfir að hafa lifað útskriftarathöfnina af í 30 stiga hita og sól. Veðrið var búið að vera fínt dagana á undan en útskriftardagurinn (sem svo skemmtilega vildi til að er afmælisdagur Ömmu Þóru!) var heitasti dagurinn í ár. Ég sat því og svitnaði í svörtu útskriftarskikkjunni með úskriftarhattinn. Það var samt eftirminnileg upplifun að mæta og ég lofa að setja inn mynd næstu helgi þegar ég kem aftur til Jersey.

Núna er ég stödd í útskriftarferð með mömmu og pabba í San Francisco. Mikil rólegheit, rölt og góður matur. Fyrsta daginn fékk ég þó kuldasjokk enda bara íslenskt sumar hér, 10 gráður og rok (!) Ég splæsti því í kuldajakka og hef haft það gott síðan :)

Dagskráin so far…
Laugardagur: 6 tíma flug frá Jersey + ótal tímar í ferðir til og frá flugvelli. Ég svaf heila 10 tíma eftir það ferðalag. Kannski spilar líka inn í að sofa loksins í góðu rúmi, en rúmin sem við Angelien keyptum á sínum tíma eru svo hörð að Angelien valdi oftar en ekki að sofa frekar á sófanum (!)

Sunnudagur: Fylgdumst með Suður-Amerísku Carnivali í spænska hverfinu. Sá mann lamin í strætó og ákvað að halda mig í öruggu hverfunum framvegis…. Nóg um það. Fór í túristahöfnina Pier 39 og í 4víddar tívolí tæki (já, ég er krakki í mér!)

Mánudagur: Rölt um Kínahverfið og miðbæinn. Kíkt í nokkrar búðir… Kínahverfið hér er víst það stærsta í USA

Þriðjudagur: Leigðum bíl til að keyra upp í víndalinn Napa. Vorum hins vegar ekki í neinu drykkjustuði og keyrðum því frekar um til að skoða náttúruna, vínekrurnar sjálfar og stoppuðum meðal annars í Old Faithful Geyser. Hann var að sjálsögðu lítill og asnalegur í samanburði til aðal geysinn í Haukadal!

Sem sagt brilliant frí. Planið er að hlaða batteríin fyrir Íslandsförina! :)

Fyrir þá sem að vilja ná í mig þessa vikuna (sms eða símtöl) þá er ég með gemsann á mér: 1-551-998-2214.
Muna bara að California er 8 klst. á eftir Íslandi í tíma :)

Knús til allra,
Þóran

Washington DC í sól og blíðu

img_02611.JPG

Ég féll alveg fyrir Washington. Spurning um að redda sér bandarískum ríkisborgararétti og láta kjósa sig á þing…
Verst hvað bandarískir þingmenn hafa almennt slæmar skoðanir (!)
En borgin er falleg og hreint ótrúlega hrein og fín. Það var líka sól allan tímann og ég borðaði góðan mat (pasta, steik, sushi og hvítvín) , sem að er auðvitað það skemmtilegasta við ferðalög.

Fyrst var keyrt til Washington, og þar skoðuð helstu mannvirki og svo á leiðinni heim var stoppað í Las Vegas okkar austurstrandarmanna: Atlantic City, þar sem að ég prófaði að “gambla” í fyrsta skipti.
Ég tapaði 3svar og hætti.. og ákvað að ég væri heppnari í ástum en spilum…

Á morgun verður útskriftin mín haldin. Mamma og pabbi eru mætt á svæðið og verða vonandi upp í stúku með “áfram Þóra” fánann…

Knús til allra,
Þóra

20 ár í skóla

Í gærkvöldi skilaði ég inn lokaritgerðinni minni. Ef að prófessorinn samþykkir hana er ég því loksins búin með 6 ára háskólanám (5 ár í verkfræði og 1 ár í kennararéttindanámi). Ef ég bæti við 14 ára grunn og menntaskóla kemur því í ljós að ég er búin að vera heil 20 ár í skóla.
Þetta er sérstaklega glæsilegt í ljósi þess að ég er ennþá 22ára…

Í gærkvöldi fór ég út að borða með Angelien og mömmu hennar. Rauðvín og amerískur hamborgari klikkar aldrei. Reyndar bað ég um salat í forrétt en fékk hálfan kálhaus með “balsamik vinegar”. Furðulegasti forréttur ever…
Þær fara heim í dag og vonandi gengur sú ferð vel :)

Sjálf er ég á leið til Washington í helgarferð.

Gleðilega kosningavöku! (fyrst að eurovision klúðraðist víst…)

Knús,
Þóran

Hnífaþjófur og útskriftarhempa

Í gær kom skóla-lögreglan upp á skrifstofuna mína í skólanum. Það hvarf nefnilega skurðhnífasett úr eldhúsinu nóttina áður. Ég kippti mér ekkert alvarlega upp við þetta enda geri ég bara ráð fyrir að einhver á skrifstofunni hafi verið að flytja og því vantað fallegt sett í nýja eldhúsið…
Á hinn boginn er furðulegt (og pínku scary?) að einhver á skrifstofunni hafi ákveðið að stela öllum skurðhnífunum en skilja eftir allar tölvurnar, flatskjáina og myndvarpana…

Að öðru leyti er lítið að frétta. Hef bara nóg að gera við að klára vinnu og skóla. Angelien og mamma hennar gista hjá mér núna í örfáa daga á leið til Íslands, og svo koma mamma og pabbi bráðlega í heimsókn til að sjá mig útskrifast.
“Útskriftar-hempan” sem að ég fékk er aðeins of stór svo að ég geri ráð fyrir að þurfa að kaupa mér mjög háhælaða skó til að detta ekki á útskriftardaginn…
…ég sé því fram á að gnæfa enn meira en vanalega yfir hina Indverjana…

Mkv,
Þóra

Próf-undirbúningur og sumar

Seinustu dagar hafa verið góðir. Allt í lagi að minnast á nokkra hluti…

- Ég fór í vínsmökkun seinustu helgi. Alltaf gaman í vínsmökkun. Ég smakkaði meðal annars hvítvín frá New Jersey og Austurríki, en hvorugt vissi ég að væri til… Slapp bæði fyrir horn…

- Angelien og mamma hennar stoppuðu hjá mér í 2 daga á leið til Kalda landsins… Þar er reyndar víst komin sól svo að ég vona að þær hafi það gott í blíðunni! :)

- Góðverk vikunnar var að fylgja gamalli konu heim þar sem að hún var ekki með regnhlif. Við áttum merkilegar samræður:
Gömul kona: You are a nice girl. Do you come from the city? Nice people always live in the city
Ég: No, I live here actually. But I come from Iceland.
Gömul kona: Iceland?
Ég: Europe….
Gömul kona: Europe?
Ég: Huuhh… England…
Gömul kona: Ahhh… the mountain people! I like the mountains! The mountain people is nice. So, how long have you lived in the city?

- Ég er búin að ákveða að flytja til Íslands í byrjun júní. Þetta var nokkuð erfið ákvörðun því að mér líður vel hér úti, en ákvað að það væri komin tími á að koma til Íslands, amk í einhvern smá tíma. Þið getið sem sagt farið að telja niður dúllurnar mínar ;)

- Þegar ég sagði leigusalanum mínum að ég væri að flytja út hrissti hún bara höfuðið og sagði: “You girls are always travelling!”.
Svo brosti hún og sagði: “My granddaughter likes the music you listen to…” (sem að kemur mér ekki á óvart því ég og 12 ára stelpur hlustum vanalega á svipaða tónlist) “can you talk to her for me and tell her to stay in school?
Ég: Huuhh… Me?
Leigusali: Yes, I am always telling her that she will never find a husband if she does not go to school….

- Ég datt niður stigann heima heima hjá mér og er núna með 20cm marblett á mjöðminni. Ekkert bikini á næstunni… Ég er líka með 6 stungur á handleggnum. Gaman að flugurnar séu vaknaðar. Ég er einstaklega vinsæl meðal þeirra….

- Hér er svo komið þetta fína veður. Ég verð þó ekki mikið var við veðrið enda að mestu inni að klára vinnuna mína (ég vinn út mánuðinn) og klára ritgerðina sem að hópurinn minn á að skila May 11th.

- Í seinasta tíma fjallaði prófessorinn minn (fyrrverandi yfirhershöfðingi) um leiðtoga. Þar kom eftirfarandi fram:
Prófessor: “I came up with this model for leaders: Vision, numbers’ skills and people’s skills are the 3 things that a leader must have. Roosevelt, Churchill and Reagan were the best presidents in the history of US. They had all those 3 things. So did Sharon, which I know personally (!), but he is unfortunately in a coma ride now.”
Nemandi: “What about President Bush? He has none of these 3 things. Right?”
Prófessor: “Well… You may argue that he is not good with numbers… But he’s determined…He is a fighter. I have to give him that!”
Nemandi: “What about Fidel Castro?”
Prófessor: “Fidel Castro?I don’t know! He may have some of those things, I do not know. But… we’re not talking about dictators here! The model does not take moral issues into account….!”

- Farin að vinna. Vonast til að heyra í sem flestum í prófatörninni :)
Mér leiðist!

Knús,
Þóra