Í kvöld kláraði ég seinasta prófið mitt í Stevens, og líklega seinasta prófið mitt í langan tíma fyrst að afþakkaði boð um að fara í doktorsnám við deildina mína. Reyndar freistandi að fá borgað fyrir að gera það sem að ég geri best (=lesist: kinka kolli í tímum og þykjast vita um hvað kennarinn er að tala) en ég held að þetta sé bara orðið gott hjá mér.
Prófið var í Financial Management, sem að er eiginlega skemmtilegasti áfangi sem að ég hef tekið. Ekki síst vegna þess að mér fannst kennarinn svo fyndinn, en hann er einn furðulegasti maður sem að ég hef kynnst.
Prófessorinn er bæði með masterspróf í lögfræði og stærðfræði, sem að er augljóslega geggjuð blanda. Hans helsta áhugasvið eru “samrunar fyrirtækja” og tekst honum að minnast á samruna oft í hverjum fyrirlestri.
Hann talar stanslaust, leyfir helst ekki spurningar í tímum og kemur í sífellu með kalhæðin komment sem að ég held reyndar að fæstir í bekknum hafi húmor fyrir.
Hverja einustu setningu klárar hann svo með því að segja: “It sounds odd, but it’s true!”
Í seinasta tíma var hann spurður að því hvað hann hefði lært áhugavert í lögfræðinni (því að verkfræðinga nördarnir geta ekki séð að það sé hægt að læra neitt áhugavert þar…). Svarið var: “You learn how to nod respectfully and to answer each and every question with: IT DEPENDS”….
Nú á ég bara eftir að klára mastersverkefnið, sem að skila á 11.maí. Verkefnið er of leiðinlegt og gengur of hægt til að einu sinni hörðustu lesendur þessarar síðu nenni að lesa um það…
…Þannig að nóg um það ![]()
Hér kom annars sól og blíða seinustu helgi og fór í gönguferð, smælaði framan í sólina og hámaði í mig ís.
Í morgun ofmat ég svo veðrið og lenti í hellidempu, regnhlífarlaus í stuttermabol og gallajakka. Maður hefði haldið að 24 ár á Íslandi hefðu kennt mér að það sé allra veðra von…
Knús til allra,
Þóra
Til lukku með að vera búin að ljúka síðasta prófinu þínu
Skil ekkert í þér að skella þér ekki bara í doktorsnám þarna líka, þá kem ég og heimsæki þig sko
Anyway, gangi þér vel með lokaverkefnið!
Til hamingju með síðasta prófið
Til hamingju mað síðasta prófið!
Takki takk allir!

Eg er samt strax farin ad sakna sma ad verda bradlega ekki lengur i skola…
Thad mun samt POTTTHETT breytast thegar eg byrja ad vaka a nottinni vid ad skrifa helv. lokaverkefnid!
Innilega til hamingju elsku vinkona! Frábært hjá þér! HÚRRA HÚRRA HÚRRA:)
til hamingju! Iss ég er viss um að lokaverkefnið fer vel!:D
Hæ hæ, og til hamingju með að vera búin með prófið. Bjalla á þig fljótlega. (og p.s. hmmm….ég man nú ekki eftir því að við höfum einhverntíman fundið upp á því að klæða okkur vel þó að við byggjum á Íslandi, gallajakki og stuttermabolur í fimbulkulda hljómar allavega mjöööög kunnuglega).