Bandaríkjamenn eru svo vitlausir að halda ekki upp á Sumardaginn fyrsta svo að ég þurfti að kenna í dag. Það er sjaldnast gaman nema að í dag lagði ég fyrir hina árlegu nemendakönnun þar sem að nemendur gefa kennurum og aðstoðarkennurum einkunn og eiga að koma með uppbyggilegar athugasemdir. Sumum fannst ég skemmtileg og öðrum leiðinleg eins og gengur. Eins og vanalega pössuðu þeir sem að gáfu mér góða einkunn að skrifa nafnið sitt við.
-”I hated the course but the TA was helpful. -Mike”-
“This course was boring. If I had wanted to learn this, I would have went to learn something boring as Accounting.”
-”The course was useless but I got good grades which was the best thing about the course. -John”
-”Some TAs are easier graders than other. That is unfair and should be fixed.”
-”I think the deadline was unfair! The deadline for homeworks was always: thursdays at 6pm but the TA was grading on other days, such as saturdays. I think she should have told us when she was planning to grade and let us hand in at that time.”
“I really liked the course, especially the TA. I plan to use this material a lot in my life! -ANDREA”
Allt mjög uppyggilegt sem sagt og fer skipulega í möppu…
…sem að verður svo að sjálfsögðu hent í ruslið.
Annars hafa seinustu dagar verið sérstakir upp í skóla, augljóslega búið að fjölga lögreglumönnum í skólanum mínum eftir árásina í systurskólanum; Virgina Tech, eða amk farið að láta lögregluna vera meira sýnilega. Því þarf ég að nota rafræna skólakortið mitt til að komast inn á skrifstofuna og heilsa oftar en vanalega (því að það er víst kurteisi að heilsa lögreglumönnum…) en að öðru leyti hef ég ekki orðið var við eins mikið ónæði og ég hélt.
Spilar líklega inn í þetta að skólinn minn er einkaskóli og mjög lítill á bandarískan mælikvarða en öryggisgæsla er mun meiri við stóra ríkisskóla. Það er í raun það sem að mér þykir mest heillandi við skólann minn og ekki viss um að ég gæti kunnað við mig í mjög stórum skóla.
Á myndinni er ég þegar ég byrjaði í skólanum í ágúst 2005, sólbrún og saklaus. Núna eftir mánuð, 24.maí 2007 mun ég (vonandi?) útskrifast. Ég vona að allir skrifi daginn hjá sér því að uppfrá því uppfrá því svara ég aðeins nafninu Master Þóra.
Farin að sofa. Lærdómsdagurinn mikli á morgun.
Þóra

Gleðilegt sumar dúllan mín! Það mikilvægasta er að kunna að taka gagnrýni, hvort sem hún er slæm eða góð! Miss ya beautiful!
Gleðilegt sumar skvís og takk fyrir veturinn eða það litla sem ég sá af þér
Eins og vanalega getur maður hlegið að atvikum úr þínu lífi. Finnst besta tillagan samt klárlega vera að þú eigir bara að senda út póst á nemendur: Jæja nú er ég í stuði til að fara yfir, vinsamlegast sendið mér verkefnin…
Sömuleiðis Berglindin mín!
Helga: Eða bara að bjóðast til að hringja í nemendur svona rétt áður? eða senda þeim sms?
Gledilegt sumar
Eg aetti kannski ad byrja ad hafa ahyggjur, thad eru engir logregluthjonar herna i skolanum hja okkur og vid hofum stort safn af norda-verkfraedingum herna a campus i Ann Arbor
Kannski vita their af thvi ad vid Maggi erum ad halda ollu med spekt med taekwondo kunnattu okkar…hahahahha
Annars er thetta ferlegt med Virginia Tech, madur var half-dofinn thegar madur heyrdi frettirnar.
take care,
kv. Sigrun
Hæ Sigrún, og takk fyrir síðast í NYC
Láttu mig vita ef þú kemur aftur hingað!
En já, þetta Virginia Tech áfall kom illa við mann. Það var haldin minningarathöfn og búið að fjölga löggum mikið. Ekki það að það breyti líklega neinu. Mér fyndist ég mun öruggari með þig og Magga í staðinn fyrir löggurnar