Óveður, leigubílar, karlrembur og Sibba….

Ég er búin að komast að ýmsu seinustu daga… Meðal annars:

- Ég hef greinilega gleymt að bryðja C-vítamínið eins stíft og vanalega því að helgin fór að mestu í kvefpest og leiðindi. Aldrei góður tími til að vera lasin en þó einna skást núna því að…

- Vegurinn sem að liggur við húsið mitt (og ég þarf að fara yfir til að komast niður til Hoboken á leið í vinnu/skóla) lokaðist vegna óveðurs. Í gærkvöldi fékk ég bréf frá borgarstjóranum sem sagði að ástæðan væri að veggur sem að liggur við veginn (8m veggur; húsið mitt er á hæð) brotnaði og féll niður vegna mikillar rigningar og roks. Því miður urðu einhver slys á fólki en enginn líklega alvarleg.

- Vegna þessa ganga engir strætóar heiman frá mér og hef ég því tekið leigubíla (og látið þá keyra krókaleið niður í annan bæ og þannig aðra leið til Hoboken). Þægilegur ferðamáti en svolítið dýrt spaug til lengdar…

-Óveðrið virðist vera að skána hér en virðist þó ganga hægt niður. Það er meira að segja minnst á það í fréttunum á Íslandi… svo að þetta hlýtur að vera heimsfrétt…

- Aðalfréttirnar eru hins vegar að sjálfsögðu fjöldamorðin í Virgina Technology. Þessi skóli er mikill vina- og samstarfsskóli Stevens Institute of Technology og því að sjálfsögðu mikið fjallað um þetta hér. Í vikunni verður haldin minningarathöfn og svo fundur um hugsanlegar aðgerðir. Ég býst við að mæta á bæði.

-Að öðru:

- Mér finnst gaman að horfa á listhlaup á skautum og mér finnst Will Farrell oftast mjög fyndinn. Blandan Blades of Glory sem að ég sá í bíó í seinustu viku fannst mér ekki jafn fyndin… Kannski er ég bara orðin of gömul fyrir svona húmor?

- Á föstudaginn seinasta uppgötvaði ég að ég er feministi… Ég læt samtals-brot fylgja með (sérstaklega fyrir hana Helgu Jónu mína!)

Ég var á fyrirtækjakynningu hjá stóru verkfræðifyrirtæki hér í Jersey. Um var að ræða fyrirlestra um fyrirtækið, bæklingum dreift, veitingar í boði og tilgangurinn að sjálfsögðu að allir myndu sækja um vinnu hjá fyrirtækinu.
Strákurinn sem að sá um kynninguna ætlaði greinilega ekki að láta hanka sig á því að vera karlremba svo að hann breytti skyndilega (og mjög óvænt) um umræðuefni:

-Fyrirlestragaur: “If you are a female, plese do not be afraid of this job. It is manly environment to work in a construction and not for everyone and I’m sure that it can scare some girls.”
-Ég leit í kringum mig og tók þá í fyrsta skipti eftir að í 50 manna hóp var bara ég og ein önnur stelpa. Ég sagði þó ekki neitt heldur fékk mér kókglas og þóttist ekki heyra það sem gaurinn var að segja. Hann hélt þá áfram.
-Fyrirlestrargaur: “We do not have many females working here. It may feel too threatening for some of them. But I am telling you: DO NOT BE AFRAID. I have met many engineers who are girls and they are smart too (!). So please do not be scared and sign up for an interview although you are a female” (!).

-Ég varð reyndar fyrst hrædd EFTIR að gaurinn fór að tala… og var næstum búin að missa út úr mér: “But what about the blacks, the gays and the muslims? Are they welcome too?”

- Ég er hins vegar vel upp alin og brosti því bara :)

- Sibba mín á afmæli í dag, 17.apríl. Hún lítur að sjálfsögðu enn út fyrir að vera 17ára svo að ég geng út frá að hún sé ekki mikið eldri. Sibba var þekkt fyrir að vera brennuvargur og þungarokkari á menntaskólaárum sínum, en er núna orðin þessi fína húsmóðir. Hún er einnig sú eina sem að hefur tekist að sannfæra mig um að ég hafi náttúrulega hæfileika sem hestamaður, og er því stefnan tekin á hestaferð sumar. Vonandi finnst nógu gamall og rólegur hestur sem að ég get ráðið við (!)
Afmælisgjöfin er frí gisting og fæði í Union City. Hér er aðeins ferðast með leigubílum og því um lúxusferð að ræða. Þú getur keypt þér flugmiða hjá Flugleiðum Sibba mín eða húkkað þér far með einhverjum togaranum ef að þú ert enn í banni hjá þeim…

Vona að þú hafir það sem allra best í dag! Risa knús

Knús til allra hinna líka,
Þóran

8 Responses to “Óveður, leigubílar, karlrembur og Sibba….”


  1. 1 Halli (yngsti) frændi Apr 17th, 2007 at 6:43 am

    þetta er alveg kostulegt.

  2. 2 Eg sjalf Apr 17th, 2007 at 6:58 am

    Halli: Tja, eitthvad serstakt tha? Eda Amerika svona almennt sed? ;)

  3. 3 Stebbi Apr 17th, 2007 at 7:59 pm

    Fínt að heyra að femínisminn sé að brjótast fram. Þú verður bráðum orðin gallharður róttæklingur.

    Hér heima á skerinu er verið að birta skoðanakannanir sem sýna að Árni Johnsen sé með 40% atkvæða!!!

    Ertu ekki örugglega búin að kjósa hjá ræðismanninum?

  4. 4 Mamma Apr 18th, 2007 at 8:48 am

    Þú hefðir nú alveg mátt standa upp og lýsa yfir hugrekki þínu við þessar “ógnvænlegu” aðstæður. En líklega hefur hann talið sig vera mjög frjálslyndan þótt hann hafi kannski innst inni ekki verið alveg viss um að þið “konuverkfræðingarnir” mynduð ráða við þær “karlmannlegu” aðstæður sem fylgja verkfræðistarfinu!

  5. 5 Eg sjalf Apr 18th, 2007 at 10:25 am

    - Audvitad alltaf verid feministi! :) Hins vegar of vel upp alin af mommu til ad gera vedur utaf smamunum….!
    - Ekki buin ad kjosa nei, en reyni ad koma thvi thegar samgongur komast i lag og “vinnugedveikin” minnkar :)

  6. 6 Helga Apr 18th, 2007 at 1:25 pm

    Ég þakka þér bara kærlega fyrir að hugsa til mín ;) Manni veiti ekki af smá skemmtiefni svona rétt fyrir prófin :þ

  7. 7 sibba Apr 21st, 2007 at 11:08 am

    Hæ hæ og takk fyrir kveðjuna. Kannski er gott að við hittumst ekki oftar en við gerum, allavega hefur mér einhvernvegin tekist að koma inn þeirri ranghugmynd hjá þér að ég sé “fín húsmóðir”. :) Og já, mér líst stórkostlega á að þú komir í hestaferð í sumar, ætli það sé ekki bara best að stóla á sömu hesta og þú prófaðir síðast, það gekk svo ljómandi vel….enda ertu fæddur talent;)

  1. 1 Free Next Day Delivery Trackback on Jan 2nd, 2009 at 12:13 am

Leave a Reply