Páskar

Hæ allir…

Ég er orðin betri í bakinu, þó að ég geri reyndar ráð fyrir að þurfa að fara í einhverja sjúkraþjálfun seinna. Mamma kenndi mér æfingar og teygjur sem eiga að hjálpa til. Ég ætla að reyna að sinna þeim, en erfiðara þegar maður er ekki með þjálfara til að skipa manni fyrir…!

Mamma kom með flatkökur, hangikjöt og jú, auðvitað páskaegg. Fátt íslenskara en það! Planið var að geyma að borða eggið þangað til Angelien kemur í heimsókn, en ef hún kemst ekki neyðist ég víst til að hakka það í mig ein (!)

Grey mamma þurfti að mestu að vera ein heima á meðan ég er að vinna og í skólanum, en hún notaði tímann vel, fór á safn, rölti um bæinn og jú, tók til í ruslahaugnum mínum…
Sérdeilis gaman að fá gesti sem að taka til hjá manni!

Ég tók mér frí föstudag, laugardag og hálfan sunnudag, og röltum við mamma um Manhattan. Reyndar ennþá svolítið kalt hérna, en þá höfðum við bara afsökun til að borða meira og drekka meira kaffi…
Ég hef sjaldan borðað jafn mikið og í þessa 2 daga. Sushi, ítalskur matur, vín og humar.

Ég átti erfitt með að hneppa buxunum í morgun…

Hér í USA er ekki haldið upp á páskana. Sumir kaupa sér reyndar súkkulaði-hænu og fá frí á föstudaginn langa en alls ekki allir. Reyndar eru frí almennt voða umfangslítil í USA. Fólk fær í mesta lagi viku í sumarfrí og svo frí föstudaginn langa, jóladag, 4júlí og Thanksgiven day.
Ekki eins mikill lúxus og á Íslandi :)

Enda hrissta Bandaríkjamenn bara hausinn þegar ég segi þeim frá sumarfríinu og barnaeignafríinu heima á Íslandi: “Oh, men! You Europeans have it easy! And all this on top of the SIESTA…!”

Heillaskeytin 50 hresstu mig mikið eins og ég bloggaði um síðast, en auk þess hafa 2 prófessorar sem að kenna mér spurt mig spurninga um bak-verkinn.
Þeir eru báðir miðaldra og með reynslu af bakverkjum, og finnst greinilega gaman (eins og flestum!) að tala um eigin veikindi.
Ísraelski verkefnastjórnunar-hermaðurinn talaði t.d. við mig í fyrsta skipti og ráðlagði mér að fara alls ekki í uppskurð: “You are far too young for a surgery. Do a physical therapy. It cured me, my upper spine was….. bla,bla”
Fjármálastjórnunar-prófessorinn er líka búin að gefa mér ýmis ráð í varðandi við bakvandamál. “Eat painkillers and show patience. That is all you can do. It is terrible. Mine was a lower back one. It started….bla,bla”
10mín seinna: “You ever had this before?”
Ég: “Uuuu.. no, not really”
Professor: “I knew it! The same thing happened to me, I woke up one day and I couldn’t move! My wife needed to carry me to the hospital!
It was terrible. It is incredible how fast it can happen! I knew a guy whom it happened to at the TOILET! Can you imagine that? He couldn’t stand up…!!”

Ég: “Uuuu.. wow, that’s bad…”
Professor: “Oh, yes! Really bad! He couldn’t stand up! You didn’t hear this from me though….”

Farin ad vinna.
Gleðilega páskaog sérstakar, síðbúnar afmæliskveðjur til Stebba bróður!

Þóra

5 Responses to “Páskar”


  1. 1 Stebbi Apr 9th, 2007 at 6:36 pm

    Takk fyrir afmæliskveðjuna!

    Og mér sýnist fataráðgjöf þín hafa komið sér ágætlega í afmælisgjöfinni frá mömmu.

  2. 2 Mamma Apr 10th, 2007 at 6:57 am

    Er mjög ánægð með fatakaupin. Næst kaupum við kannski eitthvað á þig líka!

  3. 3 Helga Apr 13th, 2007 at 10:49 am

    Gleðilega síðpáska…
    Elska þegar þú kemur með svona BNA samtöl, þau eru alltaf rugl fyndin ;)

  4. 4 Berglind Apr 13th, 2007 at 12:21 pm

    Gott að þú ert að skána í bakinu, þú verður endilega að vera dugleg að gera æfingar! Talandi um að geta varla hneppt buxunum, þá er sama staða hjá mér eftir allan páskamatinn:( Ég hringi i kvöld eða á morgun og heyri í þér ef þú ert heima…miss ya!

  5. 5 sibba Apr 16th, 2007 at 4:12 pm

    Hæbbs!
    Hey, pant tala við þig á morgun, ég skal hringja ef þú verður heima og getur sagt hvenær ég má hringja, ok:)Miss ya

Leave a Reply