Einn Prófessorinn minn er skondinn. Ég þurfti að vinna heima í viku vegna bak-vandamála.
Á fimmtudaginn er ég vanalega aðstoðarkennari fyrir hann frá kl.9am til 6pm. Nemendur eiga að vinna tölvuverkefni og senda mér svo í lok tímans.
Í þetta skipti byrjaði ég að fá póst frá nemendum mun fyrr um daginn og fór að skoða meilin.
“Get better soon, Thora”. “We miss you in lab Thora, get better” “Have a Speedy Recovery!” “I heard you’re not feeling good….so please get better soon!”
Alls 50 meil sem að þýðir að Prófessorinn hefur platað helminginn af krökkunum til að senda mér e-mail.
Ég mun að sjálfsögðu skrifa þessi nöfn yfir og gefa þeim hærri einkunnir en hinum!
Ég sá Wild Hogs og var hún betri en ég bjóst við. Svona cheer-ya-up-yet-has-some-stupid-Martin Lawrance Scenes-too. (Ef einhver skilur hvað ég meina?).
Ég fór líka á Bodies Exhibitition niðrá Fulham í NYC. Mögnuð sýning af beinagrindum og uppstoppuðum líkamspörtum og ágæt upprifjun frá MH-líffræðinni sem ég tók. Ég varð samt fegin af hafa hætt við læknisfræðina á sínum tíma… Of mikið blóð og sjúkdómar fyrir minn smekk!
Sérstaklega offitu líkaminn, hjarta- og lungu kyrrsetumanns og krabbameinsfrumur. Of miklar upplýsingar fyrir mig!
Keyrði svo með vini mínum til Westwood, New Jersey á staðinn Iron Horse. Gamall bar sem að er frægur fyrir að selja hamborgara sem eru fylltir með osti. Mmmm.. miklu betra heldur en að setja ostinn ofan á. Mæli með því
Jæja, vinnan bíður.
Mamma kemur í kvöld. Hún ætlar að gerast húshjálp og sjúkraþjálfari hjá mér í nokkra daga. Þess á milli vonast ég til að geta boðið henni út að borða og sýnt henni bæinn minn, Hoboken, og borgina mína, New York örlítið betur.
Kveðjur til allra! (líka þeirra sem að hafa aldrei samband.. ég hef fulla trú á að þeir “séu á leiðinni”…)
Þóra
Ég fór líka á þessa sýningu í Seattle, hún er mögnuð! Mér fannst ótrúlegt að sjá litlu fóstrin sem voru 9 vikna en samt mjög mannaleg! Fitan var samt ógeð og reykingalungun!:S
Ekki slæmt að fá svona mörg næs email frá nemendunum!;)
Það virkar þá að vera kennarasleikja, ég ætti kannski að fara að gera meira af því:)
Virkar i minu tilfelli ef ad nemendurnir segja ad eg se “frabaer” ja. Gerist reyndar ekki oft….
En ju, alltaf gaman ad fa get-well meil 
Enda er eg mun hressari. Mamma lika komin med skyr og flatkokur!
ahh gott að fá glaðning að heiman
En kom hún ekki með páskaegg?
og já, get well soon ….
Þetta eru mjög krúttlegar heillaóskakveðjur. Ekki sæi maður íslenska stúdenta senda svona… Má ég giska, það eru bara bandarísku nemarnir sem sendu skeyti?
-Helga: Ju, eg fekk thetta fina paskaegg. Her i USA er hins vegar ekkert paskafri svo ad eg er ekki komin i mikid paskaskap…
-Stebbi: Juju! Her skiptir miklu ad sleikja upp kennarann. Mer finnst ad nemendur a Islandi aettu ad taka thetta upp i auknum maeli…
Hæ og gleðilega páska. Gaman að mamma þín hafi komið til þín og tekið með sér skyr, páskaegg og flatkökur. Hvað er heimilislegra og íslenskara en það? Vona að það hafi komið þér í smá páskaskap!
Takk fyrir að áframsenda páskaeggið! Það var að koma, mmmm;)
Hellú…
vona að það sé gaman með múttsu þinni…mín múttsa fer alveg að koma hingað til Kanada jibbííí…:)
Kíki á þig þegar ég fer til NY að sækja hana…
Heyrumst,
Angie “greinilega endalausi djammari og unga gellan…”;)