Það var rosa gaman að hitta Ásdísi frænku í Kaliforníu. Vonandi kemst ég þangað í heimsókn aftur við tækifæri!
Ásdís býr í Santa Barbara, eða réttara sagt í “háskólahluta” bæjarins; sem að er lagalega ekki hluti af Santa Barbara, heldur skráður sem “dreifbýli” í Kaliforníu.
Af hverju? Því að í Santa Barbara býr eingöngu ríkt og fínt fólk, sem að hefur ekki áhuga á að aumir háskólanemar fái að kjósa, enda eru þeir bæði margir og kunna örugglega ekki að kjósa rétt….
Fyrstu dagarnir fóru að mestu leyti í afslöppun, rölt um Santa Barbara (ströndina og bæinn). Háskólahlutinn heillaði mig ekkert sérstaklega (enda uppfullur af 18ára hávaðasömum unglingum) en miðbærinn var flottur. Minnti mig svolítið á flottustu bæina í Jersey (t.d. Hoboken og Rutherford).
Næstu dagar fóru svo í aðeins lengri ferðir, t.d. í gönguferð um Fiðrilda-garðinn (Butterfly-park), bíltúr í Outlet-mall í næsta bæ, bíó, út að borða og fleira.
Seinustu 3 dagarnir fóru svo í ferð til Los Angeles og vínsmökkunarferð á Firestone búgarðinn. Vínið var ágætt og gaman að sjá hvernig framleiðslan á sér stað, en svekkjandi hve lítið var sett í glösin… (og að bachelor-inn Andrew lét heldur ekki sjá sig. Svindl….)
Los Angeles er skondin borg. “Tacky” er það orð sem að mér fannst lýsa henni best (og er ég nú ýmsu vön úr NJ og NY!), enda er hún uppfull af auglýsingaskiltum og tacky byggingum.
Til að vera sanngjörn þá eru auðvitað falleg hverfi inn á milli, en almennt heilluðu byggingarnar mig lítið. Stjörnu-húsin ollu mér til að mynda vonbrigðum (en við Ásdís fórum í svona stjörnu-bílferð sem að keyrði um Beverly hills og Melroce Place og sýndi okkur “skrilljóna” húsin sem að stjörnurnar búa í).
Britney er að byggja sér hús á hliðina Gwen Steffani og Puff Daddy býr beint á móti Sean Connery. Gaman að sjá hvað allar stjörnurnar eru miklir vinir. Bara svona eins og ríka fólkið á Íslandi….
Svo skoðuðum við að sjálfsögðu Hollywood (stjörnurnar á göngugötunni), gengum fram hjá ströndinni á Santa Monica Beach og Venice Beach (þá vantaði sólina), röltum um Sunset Blvd (þar var mótelið okkar) og borðuðum á okkur nokkur kíló af hamborgurum, pizzum og kökum.
Góð ferð í alla staði þó að ég hafi komið hvít tilbaka. Kannski bara ágætt þar sem að mín er farin að komast á þann aldur að þurfa að passa sig á sólinni
Amk er aldurinn farinn að segja til sín hvað varðar bakið…
Sakna ykkar allra…
Þóran
Já það var ótrúlega gaman að fá þig! Við frænkurnar verðum að gera e-ð meira svona skemmtilegt! Iss þú náðir meiri lit á þessari einu viku en ég hef náð á þremur mánuðum, það er reyndar kannski ekki að marka;)
Hæ skvísí…lofaði að kommenta svo ég verð að standa við það…;)Greinilega gaman í Californiu hjá þér…fékkst allavega sól og hita í nokkra daga…þótt það sé reyndar kominn 20 stiga hiti í NY núna!!! Hmmmm og aðeins 8 gráður í Montreal…arrrgg…þarft alltaf að gera betur…;)
Jæja vona að þú farir að lagast í bakinu…
knús og kveðjur
Angie
Ásdís: Liturinn er farinn.. Þetta litla sem ég fékk hvarf í fluginu..
Angelien: Takk skvísan mín! Í sambandi við hitastigið: Ég held þú hafir ekki litið á landakortið nógu vel áður en þú fluttir til Montreal. Það er í Kanada, þar er KALT