Læst bak

Það er greinilegt að ég er að verða gömul…
Og að ég er dóttir foreldra minna…
Því að ég vaknaði í gærmorgun með “læst bak”. Gat ekki sest niður eða beygt mig og var send á spítala hér í Hoboken.
Teknar nokkrar röntgenmyndir og ég leyst út um verkjalyfjum og sagt að liggja fyrir í nokkra daga.

Nú kemur sér vel að hafa margar sjónvarpstöðvar. Ég hef ekki séð jafn marga lélega raunveruleikaþætti síðan við Angelien upplifðum verstu þynnku ársins 2006 og horfðum á heila seríu af Flavor Flav (útbrunninn ógeðisgaur úr Public Enemy).
Svo er líka nóg af spennandi fréttum, Anna Nicole Smith, og fleira spennó

3 Responses to “Læst bak”


  1. 1 Mamma Mar 25th, 2007 at 8:11 am

    Við pabbi þinn erum svolítið sár út í börnin okkar. Alltaf þegar eitthvað er að þeim er sökinni skellt á genin frá okkur en síðan þegar þau ná góðum árangri er það alltaf ÞRÁTT FYRIR upprunann! Við höldum að þetta sé alls ekki okkur að kenna heldur eigir þú núna að notfæra þér hve margir ungir og upprennandi lögfræðingar (t.d Halli og Stebbi Kalli) eru í ættinni og stefna United Airlines. Bakverkurinn er greinilega afleiðing heimferðarinnar frá Kaliforníu!

  2. 2 Þóran sjálf Mar 25th, 2007 at 8:53 pm

    Ég er einmitt að skipuleggja lögsókn gegn flugfélaginu…
    …ætla samt að bíða eftir því að reikningurinn frá spítalanum kemur…

    …Til að vita hve mikið ég á að biðja um! ;)

  3. 3 Helga Mar 28th, 2007 at 12:22 pm

    Það er meira hvað þú ert heppin svona almennt!
    Sendi þér baráttustrauma fyrir lögsóknina ;)

Leave a Reply