California - Heimferðin

Úff, heimferðin frá California var ekki auðveld. Ég stefni á að skrifa um ferðina sjálfa á morgun eða hinn en byrja á heimferðinni fyrst.

Flugvöllurinn í Santa Barbara er næstum því eins lítill og Vestmanneyjaflugvöllur og fólkið ekki alveg með hlutina á hreinu þar heldur….
Allavega gleymdist fyrsta að setja bensín á vélina og svo þorði flugmaðurinn ekki að taka af stað vegna slæmra veðurskilyrða (come on, við erum að tala um Santa Barbara þar sem að SAMA veðrið er ALLT árið!).

Vegna þessa missti ég af tengi-fluginu mínu sem að átti að fara frá LA til NJ á sunnudaginn.
Ég sá fram á að missa af vélinni en flugfreyjan í fyrra fluginu hló bara og sagði:
“Honey! You BETTER run then! We do not have another flight for you this week!
Ég: “What? I live in New York. I can’t stay in LA for a week”
Flugfreyja: “Don’t worry honey! I’m sure they’ll wait for you!”

Þeir biðu ekki…

“I’m sorry, it’s a Spring break. We are all out of tickets! You can get a ticket for Thursday!”

Með fullri virðingu fyrir LA þá hafði ég hvorki efni á (að kaupa mér hótel í marga daga) né tíma (til að sleppa 5 auka dögum frá vinnu) fyrir þetta svo að ég gerði það sem að ég geri nánast aldrei: TROMPAÐIST!

Það virkaði ekki…

“We are not liable to delays due to weather or air traffic mam’, according to regulation 10879..”

Þá var ég alveg búin á því og fór óvart að grenja og sagðist myndu sofa á flugvellinum í 5daga…

Það virkaði…

Reyndar enda missti ég alveg cool-ið (en það var kannski ekki svo mikið fyrir!)

Konan fann skyndilega aukamiða 12 tímum síðar… Merkilegt…

Næst fór ég á mótel og lagði mig í smá stund og svo aftur upp á flugvöll.
Flaug til NYC og náði í töskurnar mínar á Newark daginn eftir. Dýra heimferðin…
Töskurnar hlupu nefnilega greinilega hraðar en ég og náðu vélinni… en reyndar ekki réttu vélinni, heldur lentu fyrst í Denver…

Aldrei aftur United Airlines…

Þóra

p.s. til Sibbu og annarra: Heimasíminn minn er 1-201-766-6177. Hægt að senda mér sms í 1-551-998-2214 ef að ég svara ekki, og ég get sent ykkur tilbaka hvenær ég verð heima. Til að hringja frá Íslandi þarf að setja 0 eða 00 á undan. Man aldrei hvort :)

3 Responses to “California - Heimferðin”


  1. 1 Berglind Mar 22nd, 2007 at 1:20 pm

    Vá, shit hvað ég hefði TROMPAST og líklega GRENJAÐ líka!!

  2. 2 sibba Mar 23rd, 2007 at 8:18 am

    Já, besta trompið sem sagt að grenja ef maður lendir í vesesni í USA.En alveg út í hött að það eigi bara EKKI að redda fólki sem lendir í svona veseni útaf mistökum hjá flugfélaginu. Díses, mar er bara illa hneykslaður!:)

  3. 3 Þóran sjálf Mar 24th, 2007 at 11:47 am

    Halli: Ég þarf greinilega að rifja þessa auglýsingu upp! :)
    Sibba og Berglind: Ég er greinilega orðin svona bandarísk já, “akta” mjög í “takt við tilfinningar mínar”! ;)

Leave a Reply