Angie í heimsókn

Til þeirra þolinmóðu sem enn lesa þessa síðu: Já, ég er á lífi! :)

Ég hef því miður ekki haft tíma til þess að pósta neinu á þessa síðu lengi, því að ég hef þurft að vinna fram á kvöld, eftir að hafa tekið mér 3 daga frí þegar Angelien mín kom í heimsókn frá Kalda-landinu.

Ég hef bara fengið þrjár heimsóknir síðan ég flutti út (hint: ég á greinilega vonda vini!): Mamma, Sóley&Edu og núna Angelien. Ótrúlegt hvað maður venst því fljótt að hafa einhvern hjá sér, og geta spjallað á íslensku (án þess að þurfa að kaupa sér símkort og hringja til Íslands..)

Við gerðum annars margt. Fórum á steikarstað á fimmtudagskvöldinu, versluðum í (fyrstu) rigningu (ársins) í Soho, rifjuðum upp gamla tíma á uppáhalds staðnum okkar, Olive garden (nóg borðað og drukkið þar!) og héldum svo upp á Skt. Patrick’s Day í grænu bolunum okkar í Hoboken. Brilliant helgi.

Hér er búið að vera kalt seinustu daga. Úff hvað ég sakna þess að eiga ekki bíl í svona kulda..

Eftir 3 tíma á ég flug til Santa-Barbara í California. Er að fara að hitta Ásdísi frænku. Verður örugglega rosa gaman :)
Ég læt heyra í mér þegar ég kemst á netið.

Knús til allra,
Þóra

7 Responses to “Angie í heimsókn”


  1. 1 Steinunn mágkona Mar 11th, 2007 at 2:43 am

    Góða ferð til Kalíforníu. Vonandi verður svolítið hlýrra þar.

  2. 2 Angelien Mar 12th, 2007 at 5:12 pm

    Hæ snúlla,
    rosa gaman í heimsókninni hjá þér…við skemmtum okkur alltaf svo vel saman:)Bla bla bla…;)En já maður er sko fljótur að venjast að hafa einhvern…búin að sakna þín mikið síðan ég kom tilbaka til Montreal:( Næst kemur þú í heimsókn í ´ekki svo mikla kuldalandið lengur´…;)
    Glöð að heyra í dag að þú hafir það svona gott í Californiu…oh alveg að öfunda þig af sólinni!!!
    Heyrumst líklega á morgun…:)
    Ciao
    Angie

  3. 3 Angelien Mar 13th, 2007 at 10:20 am

    Annað komment…Þóra það er ekki KALT í NY! Ég var að missa mig yfir hitanum hjá þér þegar ég kom…;)
    N e way…miss u hon!

  4. 4 Eg sjalf Mar 13th, 2007 at 1:36 pm

    Steinunn: Takki takk! Ferdin til Cali gekk vel (amk ad lokum!). Og ja, thad er MUN heitara en i New York, sem betur fer!
    Og Angie min: Fardu ad vinna i vedurspanni tharna i Kalda Landinu. Svo ad eg geti nu fljotlega kikt i heimsokn aftur an thess ad thurfa ad sofa i ulpu ;)

  5. 5 Angelien Mar 20th, 2007 at 1:47 pm

    Neibb hætt að vera þolinmóð…þú ert einn versti bloggari sem ég hef kynnst!!! Bloggar bara næstum aldrei…hvurslags eiginlega er þetta?;) Gott að þú skemmtir þér vel í Californiu en leiðinlegt hvað ferðin heim gekk illa…en þú komst nú á leiðarenda heil á húfi og það er það sem skiptir öllu máli:)Heyri í þér í kvöld!
    Knús,
    Angelien

  6. 6 sibba Mar 20th, 2007 at 3:35 pm

    Hæ, heyrðu nennirðu að senda mer sms með númerinu þínu, ég er annþá einu sinni búin að týna því:(
    Annars vona ég að þú hafir það gott,
    bæbæ
    Sibba

  7. 7 Halli (yngsti) frændi Mar 23rd, 2007 at 5:20 am

    Mér finnst bara mjög svalt hjá þér að bera tilfinningar þínar á torg frammi fyrir ókunnugum.

    En þetta er eins og sagt var í laginu um sólaráburðinn, prufaðu að heimsækja Kaliforníu en forðaðu þér áður en þú verður “soft”.

    >

Leave a Reply