Archive for March, 2007

Kalifornía - Ferðin

Það var rosa gaman að hitta Ásdísi frænku í Kaliforníu. Vonandi kemst ég þangað í heimsókn aftur við tækifæri!
Ásdís býr í Santa Barbara, eða réttara sagt í “háskólahluta” bæjarins; sem að er lagalega ekki hluti af Santa Barbara, heldur skráður sem “dreifbýli” í Kaliforníu.
Af hverju? Því að í Santa Barbara býr eingöngu ríkt og fínt fólk, sem að hefur ekki áhuga á að aumir háskólanemar fái að kjósa, enda eru þeir bæði margir og kunna örugglega ekki að kjósa rétt….

Fyrstu dagarnir fóru að mestu leyti í afslöppun, rölt um Santa Barbara (ströndina og bæinn). Háskólahlutinn heillaði mig ekkert sérstaklega (enda uppfullur af 18ára hávaðasömum unglingum) en miðbærinn var flottur. Minnti mig svolítið á flottustu bæina í Jersey (t.d. Hoboken og Rutherford).
Næstu dagar fóru svo í aðeins lengri ferðir, t.d. í gönguferð um Fiðrilda-garðinn (Butterfly-park), bíltúr í Outlet-mall í næsta bæ, bíó, út að borða og fleira.
Seinustu 3 dagarnir fóru svo í ferð til Los Angeles og vínsmökkunarferð á Firestone búgarðinn. Vínið var ágætt og gaman að sjá hvernig framleiðslan á sér stað, en svekkjandi hve lítið var sett í glösin… (og að bachelor-inn Andrew lét heldur ekki sjá sig. Svindl….)

Los Angeles er skondin borg. “Tacky” er það orð sem að mér fannst lýsa henni best (og er ég nú ýmsu vön úr NJ og NY!), enda er hún uppfull af auglýsingaskiltum og tacky byggingum.
Til að vera sanngjörn þá eru auðvitað falleg hverfi inn á milli, en almennt heilluðu byggingarnar mig lítið. Stjörnu-húsin ollu mér til að mynda vonbrigðum (en við Ásdís fórum í svona stjörnu-bílferð sem að keyrði um Beverly hills og Melroce Place og sýndi okkur “skrilljóna” húsin sem að stjörnurnar búa í).
Britney er að byggja sér hús á hliðina Gwen Steffani og Puff Daddy býr beint á móti Sean Connery. Gaman að sjá hvað allar stjörnurnar eru miklir vinir. Bara svona eins og ríka fólkið á Íslandi….

Svo skoðuðum við að sjálfsögðu Hollywood (stjörnurnar á göngugötunni), gengum fram hjá ströndinni á Santa Monica Beach og Venice Beach (þá vantaði sólina), röltum um Sunset Blvd (þar var mótelið okkar) og borðuðum á okkur nokkur kíló af hamborgurum, pizzum og kökum.

Góð ferð í alla staði þó að ég hafi komið hvít tilbaka. Kannski bara ágætt þar sem að mín er farin að komast á þann aldur að þurfa að passa sig á sólinni ;) Amk er aldurinn farinn að segja til sín hvað varðar bakið…

Sakna ykkar allra…

Þóran

Læst bak

Það er greinilegt að ég er að verða gömul…
Og að ég er dóttir foreldra minna…
Því að ég vaknaði í gærmorgun með “læst bak”. Gat ekki sest niður eða beygt mig og var send á spítala hér í Hoboken.
Teknar nokkrar röntgenmyndir og ég leyst út um verkjalyfjum og sagt að liggja fyrir í nokkra daga.

Nú kemur sér vel að hafa margar sjónvarpstöðvar. Ég hef ekki séð jafn marga lélega raunveruleikaþætti síðan við Angelien upplifðum verstu þynnku ársins 2006 og horfðum á heila seríu af Flavor Flav (útbrunninn ógeðisgaur úr Public Enemy).
Svo er líka nóg af spennandi fréttum, Anna Nicole Smith, og fleira spennó

California - Heimferðin

Úff, heimferðin frá California var ekki auðveld. Ég stefni á að skrifa um ferðina sjálfa á morgun eða hinn en byrja á heimferðinni fyrst.

Flugvöllurinn í Santa Barbara er næstum því eins lítill og Vestmanneyjaflugvöllur og fólkið ekki alveg með hlutina á hreinu þar heldur….
Allavega gleymdist fyrsta að setja bensín á vélina og svo þorði flugmaðurinn ekki að taka af stað vegna slæmra veðurskilyrða (come on, við erum að tala um Santa Barbara þar sem að SAMA veðrið er ALLT árið!).

Vegna þessa missti ég af tengi-fluginu mínu sem að átti að fara frá LA til NJ á sunnudaginn.
Ég sá fram á að missa af vélinni en flugfreyjan í fyrra fluginu hló bara og sagði:
“Honey! You BETTER run then! We do not have another flight for you this week!
Ég: “What? I live in New York. I can’t stay in LA for a week”
Flugfreyja: “Don’t worry honey! I’m sure they’ll wait for you!”

Þeir biðu ekki…

“I’m sorry, it’s a Spring break. We are all out of tickets! You can get a ticket for Thursday!”

Með fullri virðingu fyrir LA þá hafði ég hvorki efni á (að kaupa mér hótel í marga daga) né tíma (til að sleppa 5 auka dögum frá vinnu) fyrir þetta svo að ég gerði það sem að ég geri nánast aldrei: TROMPAÐIST!

Það virkaði ekki…

“We are not liable to delays due to weather or air traffic mam’, according to regulation 10879..”

Þá var ég alveg búin á því og fór óvart að grenja og sagðist myndu sofa á flugvellinum í 5daga…

Það virkaði…

Reyndar enda missti ég alveg cool-ið (en það var kannski ekki svo mikið fyrir!)

Konan fann skyndilega aukamiða 12 tímum síðar… Merkilegt…

Næst fór ég á mótel og lagði mig í smá stund og svo aftur upp á flugvöll.
Flaug til NYC og náði í töskurnar mínar á Newark daginn eftir. Dýra heimferðin…
Töskurnar hlupu nefnilega greinilega hraðar en ég og náðu vélinni… en reyndar ekki réttu vélinni, heldur lentu fyrst í Denver…

Aldrei aftur United Airlines…

Þóra

p.s. til Sibbu og annarra: Heimasíminn minn er 1-201-766-6177. Hægt að senda mér sms í 1-551-998-2214 ef að ég svara ekki, og ég get sent ykkur tilbaka hvenær ég verð heima. Til að hringja frá Íslandi þarf að setja 0 eða 00 á undan. Man aldrei hvort :)

Angie í heimsókn

Til þeirra þolinmóðu sem enn lesa þessa síðu: Já, ég er á lífi! :)

Ég hef því miður ekki haft tíma til þess að pósta neinu á þessa síðu lengi, því að ég hef þurft að vinna fram á kvöld, eftir að hafa tekið mér 3 daga frí þegar Angelien mín kom í heimsókn frá Kalda-landinu.

Ég hef bara fengið þrjár heimsóknir síðan ég flutti út (hint: ég á greinilega vonda vini!): Mamma, Sóley&Edu og núna Angelien. Ótrúlegt hvað maður venst því fljótt að hafa einhvern hjá sér, og geta spjallað á íslensku (án þess að þurfa að kaupa sér símkort og hringja til Íslands..)

Við gerðum annars margt. Fórum á steikarstað á fimmtudagskvöldinu, versluðum í (fyrstu) rigningu (ársins) í Soho, rifjuðum upp gamla tíma á uppáhalds staðnum okkar, Olive garden (nóg borðað og drukkið þar!) og héldum svo upp á Skt. Patrick’s Day í grænu bolunum okkar í Hoboken. Brilliant helgi.

Hér er búið að vera kalt seinustu daga. Úff hvað ég sakna þess að eiga ekki bíl í svona kulda..

Eftir 3 tíma á ég flug til Santa-Barbara í California. Er að fara að hitta Ásdísi frænku. Verður örugglega rosa gaman :)
Ég læt heyra í mér þegar ég kemst á netið.

Knús til allra,
Þóra