Ég hef fengið kvartanir yfir því að ég minnist aldrei á djamm á þessari síðu. Ætli ég sé kannski að verða gömul?
Fékk mér reyndar aðeins í glas á þriðjudaginn (boð upp í skóla) og í gærkvöldi (með vini í Hoboken), en að öðru leyti verið ótrúlega lítið djamm á mér þessa önnina.
Í morgun vaknaði ég meira að segja hálf 6 og tók leigubíl upp í skóla. Aldrei þessu vant ekki til þess að vinna heldur fórum við Javier í skíðaferð með skólanum (Shawnee Mountains i Pennsylvania). Ég hef sjaldan skemmt mér eins vel! Seinustu helgi var ég mest í barnabrekkunni eða ein í stólalyftunni því að hinir voru algjörir byrjendur, en Javier var tilbúin að taka meiri áhættu svo að við fórum í stærri brekkur. Grey Javier datt reyndar af og til en hann er harður af sér og alltaf fljótur á fætur! Við kenndum að sjálfsögðu snjóleysi um, enda mest gervisnjór á svæðinu. Ég skammaðist mín svolítið (verandi Íslendingur!) að fatta ekki að þetta væri gervisnjór og þóttist að sjálfsögðu hafa vitað það allan tímann þegar Javier fór að benda mér á allar snjóvélarnar. Ég hafði einmitt verið að spá í hvaða staurar þetta væru…
Næsta skref hjá mér er líklega að kaupa mér fínar skíðagræjur og fara að stunda Bláfjöllin þegar ég flyt heim (en ég hef ekki skíðað í 12 ár…). Hver er tilbúin að koma með mér?
Jæja, nóg í bili! Óskarinn byrjaður í sjónvarpinu. Ellen er fyndin!
Þóra
Skal vera fyrst til að commenta í þetta skiptið…þú sagðir mér að skrifa eitthvað sniðugt en mér dettur bara ekkert í hug…:/ Er samt stolt af þér að standa þig svona vel í skíðaferðunum undanfarið,alveg orðin skíðadrottning bara:) Skal skella mér með þér í Bláfjöll við tækifæri…ætli ég verði eins léleg og Frank og co við hliðina á meistaranum þér…;) Já farin að halda áfram að horfa á Óskarinn líka…og spjalla við þig á msn…alveg eins og við séum bara að horfa á hann saman hehe við erum nú meiri lúðarnir!;) Sé þig á fimmtudaginn!Og í þetta skipti kem ég, ég lofa;)
Kv.Ang
Þú hefðir náttúrulega getað bjargað þér með því að segja að þú hafir haldið að þetta væri “útlenskur snjór”. Allt er auðvitað langbest og flottast á Íslandi, meira að segja snjórinn.
Ég sé að þú hefur ekki farið að mínum ráðum að halda þig í barnabrekkunum. Skíðaíþróttin er stórhættuleg eins og reyndar margar aðrar íþróttir þannig að ég held að það sé öruggast að vera ekkert í “bröttu brekkunum”!
Ég veit nú ekki hvort þú getir farið að stunda Bláfjöllin e-ð af ráði. Það hefur nú ekki verið mikið opið vegna snjóleysis. Þú getur kannski bara komið með e-ð af gervisnjó með þér heim…Ísland er ekki alveg að standa undir nafni!!
Brilliant hugmynd ad kalla gervisnjoinn bara “utlenskan snjo”!
Eg tek hann med mer heim i vor. Tha hefidi enga afsokun til thess ad koma ekki med mer a skidi Berglind og Angie 