Líklega komin tími á smá “update”.
Á föstudaginn fórum við Frank og Sergio á ráðstefnu í Rutgers University. Frekar lítið markvert sem að gerðist þar en ég fékk þó að sjá borgina New Brunswick sem að ég hafði ekki áður heimsótt. Sæt, lítil háskólaborg við fyrstu sýn, en þó langt í frá jafn frábær og Hoboken…
Eftir heimsóknina var farið í margra tíma leit að skíðafötum (!) Fólkið í íþróttabúðunum einfaldlega gerði grín að okkur : “Yo Girlfriend! You´re crazy to come here in February! It’s SO OUT OF SEASON”…
Hvernig aðeins er hægt að vera með tennisföt og sundboli til sölu í -5C frosti finnst mér furðulegt. Loks klukkan hálf 10 um kvöldið fannst búð með skíðafötum og tók ég þá að mér “ráðgjafastörf” enda vissi fólkið í búðinni ekki mikið. “Sure, you can wear jeans underneath the ski pants” og “You don’t need a special socks, the ski boots are warm” voru meðal frábærra tillaga sem afgreiðslustelpan kom með.
Daginn eftir hélt hópurinn; ég, Frank, Gina og nokkrum kunningjar/frændfólk þeirra, til Pennsylvaniu. Við leigðum skíðadót og fundum mótel nálægt Camel-back skíðasvæðinu.
Það eiginlega gekk allt á afturfótunum í þessari ferð og var því ekki skíðað eins mikið og planað hafði verið.
Árekstur, bið eftir lögreglubíl, bið eftir bílaleigubíl, bílaleigubíll bensínlaus, bílaleigubíll festist í snjóskafli, snjóbretti stolið, einn í hópnum týndist, gsm sími týndist, debitkort virkaði ekki, mótel fannst ekki, mótel upppantað… er aðeins brot af því besta!
Svona eftir á að hyggja skemmti ég mér þó vel og náði að skíða nokkrar góðar ferðir. Komst meira að segja að því að ég man enn nægilega mikið til að geta skíðað án þess að detta og var kölluð “professional skier” af hinum í hópnum. Ég neyðist þó til að taka það fram að ekkert þeirra hafði stigið fæti á skíði áður….
Ég var þó nokkuð sátt við að detta ekki, enda ekki farið á skíði í 12 ár.. eða síðan ég skrapp í Bláfjöll seinast með annað hvort Berglindi eða Ásdísi frænku.
Brandarana: “It’s not fair you probably ski on your way to work in Iceland” og “You must love this cold, coming from Iceland!” fékk ég að heyra oftar en ég kæri mig um að muna….
Í öðrum fréttum er það helst að “Mr. Full-Of-Himself” les greinilega síðuna mína því að hann tók upp á þeirri nýbreytni að þakka mér fyrir nýjustu útgáfu skýrslunnar minnar. “Thanks to Thora for preparing this analysis”. Ágæt tilbreyting frá “It’s USELESS” and “Do again FROM SCRATCH”. Hann cc-aði þó aðeins á 5 manns í þetta skiptið svo að ég er að spá í að forwarda meilinu “óvart” á alla deildina.
Mkv,
Þóra
Vá ég er stolt af þér að detta ekki neitt eftir allan þennan tíma! Varstu kannski bara í barnabrekkunni?…hehe. Ég hef ekki heldur farið á skíði í langan langan tíma. Það var örugglega síðast með þér. Ég efast um að ég sé einhvað að fara að bæta úr því. Hafðu það rosa gott!
Hvernær er eiginlega skíða seasonið þarna úti?
-Haha, góð spurning Helga, ætli það sé ekki bara í júlí?

-Og já, aðallega í barnabrekkunni Berglind, samt betri en flestir litlu krakkarnir sko!
Hæ Þóra - Loksins næ ég að kíkja á síðuna þína - og er nú með allt á hreinu um æsispennandi ævintýri í ameríkunni.
Annars allt gott að frétta.. bíð spennt eftir hitanum, var sett upp loftkæling í íbúðinni minni í vikunni þannig ég er tilbúin fyrir sumarið.. Annars vona ég að við heyrumst bráðum, Soley
Hæ sætust,
massa leið að hafa ekki komist til þín um helgina..en hlakka mikið til að leggja í hann til þín með helv…rútunni á mið.kvöldið:)Svo þá höfum við 3 daga saman jibbííí! Hehe þessi skíðaferð var greinilega frábær…fæ nú að heyra nákvæmar sögur býst ég við þegar ég kem…enda höfum við alltaf nóg að tala um…;)
Gangi þér vel í vinnunni og skólanum snúlls…
Sjáumst eftir 5 daga:D