Síðan er komin með nýtt útlit. Egill vinur minn og tölvusnillingur er að sjálfsögðu ábyrgur fyrir því. Núna er bara spurning hvort að ég geti lært á allt þetta sniðuga sem hægt er að gera!
Takk Egill minn.
Snjóstormurinn var ekki eins og slæmur og ég bjóst við en virðist hins vegar fara hægar yfir en spáð var (hmmm.. getur stormur farið hægt yfir?). Ótrúlegt en satt var skólanum mínum lokað í dag, en þó ekki fyrr en seinni partinn. Ætli einhver hafi kannski dottið?
Á föstudaginn er stefnan tekin á ráðstefnu í Rudgers University (skóli hér í New Jersey) og svo skíðaferð með Frank og Ginu á laugardag og sunnudag. Bæði gæti þó dottið upp fyrir vegna veðurs.
Svo ætlar Angelien mín að reyna að brjótast í gengum snjóbylinn frá Kanada og koma í heimsókn á sun eða mán. Ég get ekki beðið og er þegar farin að pæla í hvert við getum farið út að borða.
Þannig að nóg að gera, sem betur fer því þá leiðist mér ekki á meðan.
Knús frá USA,
Þóra
Hæ sæta, til hamingju með nýju síðuna, rosa flott:)
Hlakka til að sjá þig sömuleiðis á sun eða mán! Og játs við förum sko saman út að borða og höfum það kósý eins og þegar þú komst hingað til Montréal:)
Sakna þín snúlls!
Kv.Ang
Frábært síða, til hamingju! Skemmtu þér vel um helgina. Vonandi fellur ekki allt niður vegna veðurs. Þeagr þið gellurnar farið svo út að borða ,ekki fá þér sushi! Þú manst eftir eitruninni síðast!!
Berglind: hahaha, já ekki minnast á það! Reyndar búin að heyra ágæta reglu með Sushi. Aldrei borða Sushi á sunnudögum! (=fiskimarkaðir lokaðir um helgar…)
Mér finnst síðan mjög flott. En myndin er samt ekkert lík þér! Vona að allt gangi vel og að þú lendir ekki í fleiri “snjóstormum” í bráð.
Flott síða. Mér brá samt smá þegar hún opnaðist. Hélt ég hefði álpast einhvert vitlaust.
Margir búnir að spyrja mig um myndina á síðunni, og svarið er “já, þetta er ég!”. Aldrei að vita að ég breyti þó myndinni einhvern tímann (ef mér tekst að læra á nýja kerfið).
Flott síða! Snjóstormur hjá þér, hitabylgja hjá mér! Iss hvað er að gerast?;)
Ásdís; Don’t even get me started on global warming!
Hæ, til hamingju með nýja lúkkið. Það mætti samt fara að koma nýtt blogg líka. Dyggustu lesendurnir eru lang kröfuharðastir:)Annars kannski hringi ég kannski bara í þig í kvöld ef ég sofna ekki of snemma! heyrumst, kv. Sibba