A way to think positive in a snow storm

Ég og yfirmaður deildarinnar minnar eigum ekkert sérstaklega vel saman. Ástæðan er í fyrsta lagi að ég svara fyrir mig og kvarta (sem að er ekki vinsælt!) og annars vegar að hann biður fólk ekki um að aðstoða sig heldur skipar fyrir.
Skipanirnar koma vanalega í e-maili og sendir hann þær vanalega til (cc/ to) allra í deildinni.
Thora,
Do the report again. It was useless.
Dr. FullOfHimSelf

Í morgun sendi hann mér eitt slíkt e-mail og sendi að sjálfsögðu á alla deildina svo að allir gætu fylgst með. Vinur minn sendi mér þá (og reyndar bara mér) skjalið:

A Way to think Positive
Í skjalinu stóð:
- Create a file called: Dr. FullOfHimSelf
- Delete the file.
- Go to recycle bin
- Empty the recycle bin

- You will get the message: Are you sure you want to delete Dr. FullOfHimSelf permanently?
- Press YES and continue with your life positively.

Mæli með þessu.

Á morgun er spáð snjóstormi í New York. Spáin segir að þetta verði stærsti stormur vetrarins og þegar er búið að setja upp “neyðarsímanúmer” upp í skóla fyrir nemendur til að hringja og athuga hvort að skólinn verði lokaður. Þar sem að ég vinn upp í skóla efa ég að honum verði lokað, því að reglan er sú að aðeins er lokað ef ekki næst að sópa stéttina fyrir FRAMAN bygginguna, óháð því hvernig veðrið í borginni er.
Hvers vegna?
Því að ef að einhver dettur fyrir framan bygginguna þá getur hann farið í mál við skólann og fengið milljónir í skaðabætur

Sem starfsmaður skólans get ég því miður ekki farið í mál…

Mkv,
Þóra

1 Response to “A way to think positive in a snow storm”


  1. 1 egill Feb 14th, 2007 at 4:10 pm

    Hæ hæ.

    Ég tók bloggið þitt í gegn, en er reyndar ekki búinn. Talaðu við mig næst þegar þú ert á MSN, þú þarft að velja þér hentugt útlit, og kannski læra aðeins á þetta, fá lykilorð o.s.frv.

    Kv,

    Egill

Leave a Reply