Boston

Róleg helgi liðin. Búin að slappa vel af heima hjá Svönu frænku í Boston og sofa, horfa á dvd, spjalla og “hakka í mig” hellings mikið af ostum og rauðvíni. Alls ekki svo slæmt!

Ég þurfti reyndar líka að fara á fund, en meira um það síðar.

Bandaríkjamenn eru “spes”. Í gærkvöldi var úrslitaleikurinn í Super-Ball og allir voða spenntir, en þó virtist vera jafnvel enn meiri spenna í kringum auglýsingarnar. Ekki nóg með að allir horfi á þessar auglýsingar þá er búið að forsýna þær flestar alla vikuna í FRÉTTUNUM. Ég er greinilega ekki orðin nógu mikill Kani í mér til að skilja þetta “hype”, enda horfi ég helst ekki á auglýsingar nema í neyð :)
Í Boston er kalt. Ekki reyndar Kanada-kalt (en fyrir þá sem ekki vita þá er það nýtt orð yfir SKÍTAKULDA) en samt of kalt til þess að skoða neitt að ráði. Ég er þó búin að kynnast metro-kerfinu vel og búin að prófa annan hvorn drykk á Starbucks til að halda á mér hita. Fyrir áhugasama þá er Green Tea Latte það “heitasta” á Starbucks þessa dagana…

Stefni á að koma aftur í aðeins betra veðri og taka myndavél með enda ein fallegasta borgin í USA.

Meira þegar ég kem aftur heim til Jersey :)
Þóra

2 Responses to “Boston”


  1. 1 Steinunn mágkona Feb 5th, 2007 at 9:25 am

    Ég frétti að þú hefðir haft munninn fyrir neðan nefið á þessum fundi.

    Takk fyrir gráu peysuna. Hún passar bara ljómandi vel á mig.

  2. 2 Ég sjálf Feb 6th, 2007 at 4:09 am

    Já, ég held að ég sé oftast með munninn fyrir neðan nefið. Verst er að það “fatta” ekki allir húmorinn minn ;)

Leave a Reply