Íslenskar lúffur

Ég dó næstum úr kulda þegar ég beið eftir strætó í gærkvöldi!
Íslensku lúffurnar sem að mamma keypti handa mér í sumar og eyrnaskjólin mín fínu úr Macy’s urðu þess valdandi að ég varð ekki úti… Því miður er desember ekkert á miðað við jan, feb og mars.

Ótrúlegt hvað það verður alltaf allt-í-einu-kalt hér í New York. Verst að ég þarf að fara í vinnuna í dag og löngu “búin” með veikindadagana. Þetta hefði verið svo upplagður dagur til þess að leigja video og borða nammi upp í sófa… :)
Þóra

p.s. Prófið í gær gekk held ég ágætlega. Ég var amk sú eina sem að vann að því ein. Indverjagrúppan stóð fyrir hópvinnu í prófinu eins og þeim er einum lagið!

2 Responses to “Íslenskar lúffur”


  1. 1 sibba Dec 7th, 2006 at 1:28 pm

    Hæ, nú er ég farin að telja niður. Til jólanna? Nei, eftir að Þóran komi til landsins:) Ég hugsa að ég verði í bænum um jólin þannig að við hittumst allavega þá
    kv.
    Sibba

  2. 2 Sibba Jan 13th, 2007 at 8:37 pm

    Hæ, hæ. Ekkert blogg, og þú búin að vera alveg næstum 2 daga í USA! Uss, uss, uss……

Leave a Reply