Is there EVER a good time for a food poisoning?

Í gærkvöldi nældi ég mér í matareitrun. Ég held stundum að maginn á mér sé gerður úr bómul :( Ég get þó ekki kennt snilldar eldamennsku minni um, heldur hráum fiski í Hoboken…

Nú sólarhring og einni læknisferð síðar er ég að hressast.

Ég fór í ferðalag yfir Thanksgiving að hitta íslensk/amerísku ættingja mína UpState New York. Ég stefni á að blogga um það á morgun þegar ég verð vonandi orðin hress :)
Lokaprófin að byrja í þessari viku svo að ég valdi mér ekki besta tímann til að fá matareitrun. Læknirinn horfði skringilega á mig þegar ég minntist á það og spurði tilbaka: “Is there EVER a good time for a food poisoning?”

Lögreglumenn í New York sýna enn einu sinni hvað þeir eru slæmir á taugum þegar þeir skutu “óvart” 50 sinnum óvopnaðan mann í Queens daginn fyrir brúðkaupið sitt. Félagar hans eru á spítala, en þeir fengu “aðeins” 11 og 3 kúlur í sig. Hræðilegt mál og fátt fjallað um annað í fréttunum í dag.

Steinunn mágkona var í Silfri Egils um helgina og stóð sig rosa vel. Fyrir áhugasama er hægt að horfa á þáttinn á visir.is

Knús til allra,
Þóra

2 Responses to “Is there EVER a good time for a food poisoning?”


  1. 1 Helga Nov 28th, 2006 at 12:42 pm

    Það er alveg ótrúlegt hvað þú ert alltaf heppin!

  2. 2 Ég sjálf Nov 29th, 2006 at 3:02 am

    Já, ég er fædd undir heillastjörnu ;)

Leave a Reply