Þegar ég var í fyrsta bekk í MH klúðraði ég stærðfræðiprófi. Kennarinn minn, Ragna Briem, ákvað að leita að rökréttri skýringu á því að þessum stillta, prúða nemenda gengi illa og spurði mig eftir tímann hvort að ég væri nokkuð með talnablindu (=lesblindu á tölur).
Mér fannst þetta mjög líkleg skýring og fór með hana heim, en mamma hrissti hausinn og sagði að ég hefði einfaldlega verið illa lesin!
Í gær fór ég í "midterm" í "managerial accounting" og fékk mjög svo undarleg svör við öllum dæmunum… Kennarinn hefur oft viðrað þá kenningu sína að aðstoðarkennarar (TAs) séu alltaf hæstir í bekknum. Ég er að hugsa um að viðra á móti kenninguna um talnablinduna…
Það eru greinilega aðeins 2 vikur í þingkosningar hér í USA því að það er ekki fjallað um annað í fréttunum og greinilegt að repúblikanar eru orðnir örvæntingafullir. Margar auglýsingarnar sem að þeir keyra eru svo ósmekklegar að þær eru nánast hlægilegar. Samanber þessi þar sem að demókrati er m.a. bendlaður við Playboy partý….
Þó að ég sé ekki með kosningarétt fæ ég fullt af auglýsingabæklingum senda. Þeir eru að sjálfsögðu allir spænsku enda er ég með þeim fáu sem að tala ensku í hverfinu…
Í kvöld fór ég á kokteilboð í nýju byggingunni. Sushi og hvítvín er kvöldmatur sem að ég væri sátt við að fá á hverju kvöldi! 
Þóra
0 Responses to “Talnablinda”