Þreyta

Annað hvort er óvenju mikið að gera hjá mér þessa dagana eða ég of góðu vön… því að upp á síðkastið hef ég lítið gert annað en að vinna, læra og reyna að sofa.

Ég fer upp í vinnu klukkan 7 á morgnana, og kem heim klukkan 10 á kvöldin og það er ekkert smá þreytandi til lengdar. Mig sárvantar því einhvern til að ganga í þau störf sem að ég hef ekki getað sinnt heillengi, svo sem að kaupa í matinn, elda, þrífa og fara í leikfimi (!)

Sóley og Edu koma í heimsókn fljótlega og ég geri því fastlega ráð fyrir að þau gangi í þessi störf….

Sakna ykkar allra!

Þóran

3 Responses to “Þreyta”


  1. 1 Berglind Oct 18th, 2006 at 1:37 pm

    Þetta er nú bara eins hjá mér: vinna, sofa og læra!! Ekkert voðalega fun:( Ég hef samt Torfa, en hann nennir ekki að gera skítaverkin…þannig ég held að staðan sé bara svipuð hjá okkur:)

  2. 2 Ég sjálf Oct 20th, 2006 at 3:49 am

    Berglind: ég var einmitt viss um að Torfi væri jafn duglegur í að þrífa og að elda. Verður boðið upp á pasta með fiskbúðingi um jólin?! ;)

  3. 3 Soley Oct 22nd, 2006 at 7:36 pm

    Hæ þóra - tilgangur ferðarinnar er einmitt sá, að hugsa um þig.. þvo þvotta, elda matinn ofl.. ég ætti kannski að taka mömmu Edu með..og jafnvel skilja hana eftir hjá þér… hvað finnst þér um það?? býrðu ekki líka í spænsku hverfi.. hún yrði svo ánægð að fá að hugsa um þig

Leave a Reply