Seinustu daga hef ég haft mikið að gera í skólanum. Ég man ekki eftir að hafa nokkurn tímann verið jafn dugleg að læra… (en reyndar nær minni mitt ekki mjög langt aftur (!) ). Næsta vika verður svo extra stíf í vinnunni, en þá þarf ég m.a. að dressa mig upp og hlusta á útskriftarnemendur halda fyrirlestra og gefa þeim einkunn. Þessa önn var ég nefnilega "hækkuð í tign" og neyðist til að klæðast dragt af og til, í stað þess að geta farið yfir mín heimadæmi í friði í hettupeysu og strigaskóm. Á þrið. og fim. þarf ég því að virka extra gáfuleg og þykjast hafa einhverja hugmynd um hvað BS verkefni í umhverfis- og byggingarverkfræði fjalla um…
Á fimmtudaginn seinasta fór ég í "midterm" í Modelling & Simulation og var það sérstök lífsreynsla. Ég er vanalega ekki týpan sem að spyr mikið í tímum/prófum en þarna var ég eitthvað alveg að misskilja eina spurninguna þannig að ég spurði prófessorinn um ráð. Hann tók því ágætlega og útskýrði fyrir mér í löngu máli. Allt í lagi með það nema að eftir það þá sendi hann alla sem að voru í vafa til mín og lét MIG útskýra! "Thora is from now on the new teaching assistant for question 2. If you have any questions go to her!" Það sem eftir var af prófinu var endalaust verið að trufla mig og spyrja mig um spurningu 2. Einn kínverjinn gekk meira að segja svo langt að rétta mér prófið sitt og segja: “So, this correct or no?”
Í gærkvöldi fór ég með Frank vini mínum og ítölskum vinum hans til Manhattan. Við kíktum á einn af mörgum "snobb"-börum þar í borg; Bubble Lounge, sem að er bar sem að sérhæfir sig í kampavíni og MTV tónlist.
Ég fékk lax og kampavín og skemmti mér barasta mjög vel. Held samt að ég þurfi að fá mér betur launaða vinnu ef að ég á að geta keypt mér fleiri kokteila á Manhattan, enda enn dýrara hér en í Reykjavík… Ef að einhver á vel borgaða, skemmtilega stjórnunarstöðu lausa handa mér þá er sá hinn sami beðinn um að hafa samband….
Jæja, Desperate Houswives að byrja. Vonandi er eitthvað nammi til í skápnum 
Þóra
p.s. Berglind fær afmæliskveðjur í annað sinn. Vonandi áttiru góðan dag!
Og Angelien og Sibba líka fyrir að hringja í mig. Þið björguðuð helginni! 
0 Responses to “Midterm og kampavín”