Vélmenni, kók og hlutabréfa-áföll

Helginni eyddi ég að mestu leyti í NYC. Helling af Sushi og hvítvíni innbyrt á föstudagskvöldinu með strákunum úr vinnunni eftir hlutabréfakynninguna "miklu". Ég get reyndar ekki sagt að hún hafi verið mjög lærdómsrík. Fyrirlesarinn var reyndar skondinn gaur og í raun frekar leikari en fyrirlesari. Hann t.d. setti upp leikþátt um Wall Street- gaur sem að fékk hjartáfall eftir að American Airlines fór á hausinn og annan sem að flutti til Grænlands eftir að Enron hneykslið komst upp). Á móti kom að hann útskýrði aðeins mjög einföld grunnatriði svo að ég varð litlu nær. Bandaríkjamenn eiga það nánast alltaf til að útskýra hlutina OF vel.

Hitti svo Brynju stuttlega yfir dinner á laugardeginum. Gaman að heyra hve góða hluti hún er að gera í Ameríkunni Smile Vonandi hitti ég hana fljótlega aftur.

Á sunnudaginn fór ég svo á tæknisýninguna Wired - Next Fest. Þetta var algjör nördasýning þar sem að litlir verkfræðistrákar hlupu um og stóðu í löngum röðum til að fá eiginhandaáritanir hjá Nasa geimförum og smakka nýjasta kók-drykkinn Coke-Black. Þeir sem að gengu svo langt að syngja Coca Cola lagið fengu meira að segja tvær gefins flöskur Wink.

Ég er augljóslega nörd því að ég skemmti mér vel. Flottast var vélmenni sem að var eftirlíking af Albert Einstein. Það skrölti um og hreyfði meira að segja "munninn" þegar það talaði. Hvaða tilgangi þetta vélmenni átti að þjóna var óljósara…

Háhælaðir skór með innbyggðu GPS staðsetningartæki og myndavél höfðu augljósari tilgang. Þeim er til að mynda ætlað að auðvelda vændiskonum vinnuna….

Jæja, sakna ykkar allra! Kiss

Þóra

P.s. Ég mæli með myndinni Little Miss Sunshine. Mér fannst hún mjög svo góð. Kemur kannski ekki á óvart þar sem að ég fíla eiginlega allt sem að Greg Kinnear og Toni Collette gera. Held að ég hafi séð As Good as it Gets og Muriel’s Wedding oftar en ég þori að greina frá….

4 Responses to “Vélmenni, kók og hlutabréfa-áföll”


  1. 1 Helga Oct 3rd, 2006 at 4:33 pm

    það eru líka ótrúlega fyndnar myndir :) það er greinilega nóg að gera hjá þér í Ameríkunni!

  2. 2 Angelien Oct 4th, 2006 at 5:56 pm

    Hæ snúlls,nenni nú ekkert að commenta á þessa nördasýningu sem þú fórst á:/ Langaði bara að að segja “hæ ex-roomy:)Miss you!!!” Bið heilsa Frank og co;)já og Union City-inu mínu:)

  3. 3 Halli Oct 5th, 2006 at 5:57 pm

    ohh, mér langar í kók blek!

    jafnvel að ég myndi syngja kókakóla lagið (hvaða lag erum við annars að tala um - I’d like to give the world a coke?)

  4. 4 Ég sjálf Oct 5th, 2006 at 6:57 pm

    Halli: Yep! “I’d like to buy the world a Coke and keep it company..” Klassískur partý-smellur! Cola-Blek finnst mér samt ekki gott. Einhvers konar kaffi-kók. Furðulegt bragð. Hins vegar mjög væmið svo þetta slær pottþétt í gegn.

    Angie: Sakna þín líka :)

Leave a Reply