Mikið að gera

Aldrei þessu vant er búið að vera rosa mikið að gera hjá mér. Sama hvað ég reyni er ég alltaf á seinustu stundu með allt…. Ég er reyndar að spá hvort að ef til vill sé ekki meira að gera heldur en vanalega heldur sé ég bara að taka of langan tíma í hlutina. Vanalega taka verkefni mig alltof langan tíma þegar þarf að skoða og pæla í þeim frá mörgum hliðum og hafa persónulega skoðun á. Ég er náttúrulega svo "kassalega" verkfræðingur að ég vil bara hafa þetta svart og hvítt ;)

Í kvöld var ég að gera hópverkefni og var meira að segja svo upptekin að ég gleymdi að borða kvöldmat. Held að það hafi ekki gerst í mörg ár enda er ég sísvöng! Sem betur fer er ég með smá varaforða utan á mér ;)

Á morgun er kynning í skólanum þar sem að helstu fyrirtækin í NY og NJ koma saman og kynna starfsemi sína. Ég á að vera mætt klukkan 7 í fyrramálið (það er eftir rúma 7klst). Vandamálið er að ég var beðin um af prófessorunum upp í skóla að mæta í dragt enda er víst þannig "dress-code"….

Ég hefði alls ekkert á móti því að vera í dragt ef að ég bara ætti dragt svo að ég veit ekki alveg hvernig ég mun "tækla" þetta vandmál. Vonandi get ég "talað" mig inn í salinn… ef ekki mun ég skyndilega leggjast í flensu ;)

Mkv, 

Þóran…

0 Responses to “Mikið að gera”


  1. No Comments

Leave a Reply