Það var óvenju gaman í tíma í kvöld. Við horfðum á heimildamyndina um Enron hneykslið: "The Smartest Guys in the Room." Ég mæli með henni fyrir alla sem hafa örlítinn áhuga á viðskiptum. Mjöööög áhugaverð. Ég er farin að hafa meira gaman af heimildamyndum en áður. Ætli ég sé ekki bara farin að eldast?
Ég er oftast nær óheppin þegar ég held að ég sé að gera "rosa góð" kaup. Líklega vegna þess að ég gleymi oft að hugsa…. Ég er með einstaklega viðkvæma húð en virðist af einhverjum ástæðum alltaf gleyma því á milli þess sem að ég fæ "útbrot". Málið núna er að allar flottustu Hollywood stjörnurnar (s.s. Jessica Simpson, Elle Macpherson og fleiri) hafa keppst um að auglýsa húðvörur sem að eiga að “bjarga húðinni frá glötun!”. Eftir að hafa verið heilaþvegin af auglýsingunum í hálft ár ákvað ég að prófa prufueintak á tilboði. Í gærkvöldi prófaði ég kremið en vildi þá ekki betur til en svo að ég vaknaði í morgun öll brennd og flögnuð í framan! Alltaf gaman að fá spurninguna: "What happened to your face?!" þegar maður mætir í vinnuna.
Annars hefur verið mikið að gera hjá mér í skólanum upp á síðkastið og því lítið í fréttum. Ég er þó búin að uppgötva tvennt. Annars vegar að mér finnst "Crystal Ball" mjög skemmtilegt forrit (en líklega finnst engum það áhugavert sem að les þessa síðu…) og hins vegar að sushi er æði!
Fólk í Hoboken er alveg sjúkt í sushi og annar hver veitingastaður hér selur sushi. Ég hafði alveg smakkað sushi nokkrum sinnum áður en fyrst núna er ég virkilega “komin upp á bragðið”. Vonandi verður "ódýrum" sushi stöðum í Reykjavík búið að fjölga í amk einn þegar ég flyt aftur heim….
Mkv,
Þóra
hehe ég hef farið tvisvar til Japan og samt aldrei smakkað shushi, kannski er það líka best ef það er svona ávanabindandi. En ertu með facebook?
Nobb, er ekki med Facebook. Er eitthvad varid i thad?
Vinkona úr skólanum er alltaf að draga mig með sér á sushi stað! Ég er samt ekki enn orðin háð. Mig langar venjulega í allt annað en það, en ég læt nú stundum undan:)
Berglind og sushi?! “MEN”.. alveg kom þetta mér á óvart!
Farin að svíkja Vegamót?!