Ég komst óséð inn á fyrirtækjakynninguna í gær, klædd hvítri skyrtu og háhæluðum skóm. Mjög fegin því að þeir hleyptu ekki öllum inn, til að mynda var nokkrum gallabuxnaklæddum Indverjum snúið við á staðnum…
Ég skemmti mér ágætlega á kynningunni. Ég var að sjálfsögðu með bunka af "resumé"-inu í annarri og 30 penna í hinni! Hvað er þetta með ófrumleika fyrirtækja að gefa alltaf bara penna í kynningarskyni?
Eitt fyrirtækjanna var hins vegar svo sniðugt að gefa Yankees-dót (ég held að það sé hafnaboltalið….) og urðu þess vegna lang vinsælasta fyrirtækið á staðnum! Nördastrákarnir stóðu alveg í löngum röðum til þess að fá "alvöru" Yankee húfur og boli gefins.
Bandaríkjamenn eru annars alveg sjúkir í íþróttir. Ég (sem að hoppa alltaf yfir íþróttastöðvarnar þegar ég "browsa" á sjónvarpinu) lenti til dæmi í miklum vandræðum með seinasta heimaverkefni í "Modelling and Simulation" þegar ég átti að finna stærðfræðilegt samband á milli breyta í Amerískum fótbolta. Hvað "yards gained", "giveaways" og "takeaways" eru og hvernig þau tengjast "Giants’ Games Won" er einfaldlega fyrir ofan minn skilning….
Á morgun fer ég á stutt kynningarnámskeið í "trading" á bandaríska markaðnum. Ég hef aldrei átt hlutabréf á ævinni en fæ víst að leika mér með barna forrit sem vanalega er notað til þess að kenna litlum, ríkum einkaskóla-börnum hvernig þau geta orðið enn ríkari. Þetta verður örugglega mjög spennandi!
Knús til allra,
Þóra
Athugasemdir