Frænka mín sem rekur lífrænt kaffihús hér í USA varaði mig í fyrra við Dunkin Donuts kaffinu. Hún sagði það ávinabindandi því að hrúað væri sykri (og öðrum viðbjóði?) á kaffibaunirnar til að fá fólk til þess að kaupa það aftur og aftur… Ég tók nú aldrei mikið mark á þessu en eftir daginn í dag verð ég hugsanlega að breyta um skoðun. Mér leiddist sérlega mikið í vinnunni og fór þrisvar sinnum á Dunkin til að kaupa mér kaffi. Í þriðja skiptið var sagt: “Your regular order, ma’am?”
Niðurstaða: Annað hvort er Dunkin kaffi ávinabindandi eða ég of löt til að labba 6 "blocks" niður á Starbucks…
Annars fer það rosalega í taugarnar á mér þegar ég er kölluð "ma’am", en Bandaríkjamenn nota það orð mikið. Látum vera að 15 ára Indverjar á Dunkin eða "krakkarnir" sem ég kenni kalli mig "ma’am", en sextugir strætóbílstjórar í Jersey..?! Hvað er það?!
Þóra
p.s. ítreka þetta með vírusvörnina…
ja eg missti af ther adur en thu forst ut:S Verdum bara ad hittast uti. Eg tholi heldur ekki ad vera kollud maam, alika eins og vera kollud kerling! Geturdu ekki fengid virusvorn hja skolanum? Thu gaetir orugglega sannfaert tha um ad ovarin tolva a netinu theirra gaeti verid haettuleg fyrir tolvukerid theirra:) Eg fekk mina a.m.k. thar, annars geturdu talad vid Freyju (freyjafinns@gmail.com) vinkonu mina hun veit um fullt af svona okeypis vornum sem haegt er ad fa a netinu.
ég reyndi að pósta þessu um daginn en það birtist ekki:
http://free.grisoft.com/doc/Get+AVG+FREE/lng/us/tpl/v5
fær góða dóma og er úr gamla heimabænum mínum
Takki takk Ásdís og Halli!