Loftkælingaleysi

Jæja… nú fer að styttast í að ég hætti í (sjálfboða?)vinnunni minni hér upp í Stevens Institute og komi heim í frí. Ég lendi þann 16.júlí. Jibbí Smile Ég vil endilega hitta sem flesta og sem oftast. Ólína litla er samt sú sem ég hlakka mest til að sjá, þrátt fyrir að krúsin muni nú varla eftir mér.

Ég er búin að hafa það fínt enda er þetta fína veður hér úti (fyrir utan jú nokkur mannskæð flóð en ég slapp nú sem betur fer við þau öll….!). Íbúðin litla höndlar hita ekki eins vel og ég og því er búið að vera svaðalega heitt hér í júní og júlí. Loftkælingin sem að ég fjárfesti í á eBay kom nefnilega aldrei. Ég vona samt að sölumaðurinn í Georgia hafi nú keypt sér eitthvað fallegt fyrir peninginn sem að við Angelien gáfum honum……

Skondið samt hve fólk sem að er svo heppið að eiga loftkælingu ofnotar hana! Þó að það sé hlýrabolaveður úti þarf ég alltaf að taka með mér peysu til að vera í í vinnunni og í strætó. Einn daginn voru hátt í 30C úti og ég ákvað að taka strætó útí búð. Mín lenti þá í 5C köldum vagni og umferðateppu. Daginn eftir var ég eina manneskjan í vinnunni með kvef…

Í fyrramálið ætla ég að skreppa til Boston að heimsækja Svönu frænku. Ég skoða samt án efa tölvupóstinn minn þar 70 sinnum á dag eins og vanalega þannig að endilega sendið mér línu! Wink

Knús,

Þóran

2 Responses to “Loftkælingaleysi”


  1. 1 Berglind Jul 9th, 2006 at 11:05 pm

    Leiðinlegt með loftkælinguna! Hlakka til að sjá þig, tel niður dagana:)

  2. 2 Eg sjalf Jul 9th, 2006 at 11:51 pm

    Eg hlakka lika rosa til ad sja thig Berglindin min (sem og alla adra!). Thetta styttist :)

Leave a Reply