Ef ske kynni að einhver hefði áhyggjur þá er ég ekki drukknuð…. amk ekki enn!
Það eru mikil flóð hér á Austurströndinni og margir búnir að missa heimili sín. Svakalegt að fylgjast með þessu í fréttunum. Sem betur fer er ekki eins mikil rigning hér. Það er t.d. ekki rigning hér í augnablikinu, heldur bara mjög heitt og skýjað. Í gær rigndi samt meira en ég nokkru sinni upplifað, meira að segja nýja fína regnhlífin hafði lítið að segja!
Ekkert bólar enn á loftkælingunni og er ástandið í litlu holunni orðið verulega slæmt. Svei mér þá ef að þetta verður ekki fyrsta og seinasta skiptið sem að ég versla á eBay…. Að ganga inn í íbúðina er eins og að ganga á vegg! Stundum sakna ég þess að vera á Íslandi… og geta bara opnað glugga ef manni er heitt…..
Þóra
Heima er best!