Fyrsti fyrirlesturinn

Jæja, þá er fyrsta alvöru kennsludeginum mínum lokið. Jú, ég var alla seinustu önn að fara yfir heimaverkefni og í sumar hef ég verið að aðstoða í tölvutímum og svara spurningum en í dag hélt ég minn fyrsta fyrirlestur. Prófessorinn minn er á ráðstefnu og skyldi mig eftir til þess að ljúka sumarönninni.

Ég vissi hvað ég ætlaði að segja og var ekki beint stressuð en samt fannst mér þetta hálf skrítið og veit varla enn alveg hvernig þetta fór. Ég fékk reyndar engar spurningar en á móti kemur að ég sá allnokkra geispandi nemendur í salnum og er ekki frá því að gaurarnir í annarri röð hafi hrotið…….!

Frá byrjun ákvað ég þó að kenna því frekar um að klukkan var aðeins 10am heldur en að ég sé svona leiðinlegur fyrirlesari!

Þegar ég kenndi í MS þurfti ég að meðaltali að "sussa" 5 sinnum í hverjum tíma en þarna var svo mikil þögn að ég heyrði meira að segja sjálfa mig hugsa!

Eitt var þó líkt…nemendurnir voru glaðir að fá að hætta snemma!

Sólin heldur áfram að skína og það er orðið ólíft í íbúðinni okkar. Það er svo heitt að maður svitnar við að snúa sér við! Við ákváðum því að panta okkur litla loftkælingu á Ebay. Hvort að hún komi, hvort að hún virki og hvort að við getum sett hana saman er svo bara seinni tíma vandamál! Á okkar heimili er nefnilega framkvæmt fyrst… og hugsað svo (eða ekki?!)

Um helgina á að vera þrumuveður! Ég er ekki alveg að fatta hver stjórnar veðrinu hér því að það virðist alltaf vera betra veður um helgar en á virkum dögum. Ég verð því líklega að bíða með frekari sólböð þangað til heima á Íslandi. Ég er nefnilega búin að lofa Berglindi (og fleirum!) að taka sólina með mér heim…

…..og já, það styttist í að ég komi heim. Á bókað flug 15.júlí!

Knús til allra,

Þóra

2 Responses to “Fyrsti fyrirlesturinn”


  1. 1 Sóley Jun 22nd, 2006 at 3:43 pm

    hæ þóra.
    ég sé þú ert enn við góða heilsu, ég er í frí á islandi og er að fara heim á laugardaginn. Mikill spenna.. ætlaðir þú ekki að hringja í mig??? Segðu svo brandara í tíma.. t.d. brunasöguna… eitthvað svona skemmtilegt frá sjálfri þér.. verður að halda nemendunum vakandi.. gerðu svo erfitt próf..

  2. 2 Eg sjalf Jun 22nd, 2006 at 6:42 pm

    Soley: Verst ad thu ert ekki i timum hja mer, ther finnst eg alltaf svo skondin ;)

Leave a Reply