Strandarferð

Jæja, enn ein helgin liðin og vinna á morgun. Mér líkar hreint ekki við mánudaga… og reyndar finnst mér sunnudagskvöld eiginlega enn verri. Því að á sunnudagskvöldum fatta ég alltaf hve mikið ég ætlaði að gera um helgina og hve lítið ég virkilega gerði að viti….

Á föstudaginn var hátíð í litlu íbúðinni þegar Hollendingar unnu Fílabeinsströndina á HM. Leikurinn var sýndur í hádeginu á bandarískum tíma og því hollenskur hádegismatur; brauð með jarðaberjum og flórsykri.

Í dag var sól og við Angelien fórum á ströndina, Point Pleasant (Jersey Shore). Þrátt fyrir að ferðalagið tæki 2 tíma hvora ferð (af hverju stoppa þessar lestar alltaf svona oft?!) var þetta brilliant dagur. Ég lá í sólinni og las slúðurblöð, brann (vonandi ekki alvarlega þó!) og borðaði risa krabba á sjávarréttarstað.

Núna sit ég (tómaturinn) við viftuna með after-sun flöskuna í fanginu….

…þó með ofurtrú á að kraftaverk gerist og ég verði minna rauð á morgun! Innocent

Þóra

4 Responses to “Strandarferð”


  1. 1 Mamma Jun 19th, 2006 at 9:55 am

    Gott að þið skemmtuð ykkur vel á ströndinni en ég SAGÐI þér að passa þig að brenna ekki. Ég er farin að halda að það sé ekkert að marka málsháttinn “Brennt barn forðast eldinn”. A.m.k ertu ekkert varkárari eftir að þú lentir í þessu sama fyrr í sumar. ÁFRAM HOLLAND!!!

  2. 2 Eg sjalf Jun 19th, 2006 at 12:22 pm

    Thetta med ad brenna var bara oheppni. Setti a mig fullt af solarvorn. En greinilega ekki nogu sterka/oft… En hvad, enginn er verri thott hann brenni ;)

  3. 3 Mamma Jun 20th, 2006 at 8:47 am

    (… nema að hann brenni til ösku (?)). Ég var nú bara að stríða þér á þessu. Taktu það ekki of alvarlega. Það er allt í lagi að þú farir einstaka sinnum í sólbað ef þú notar bara sólarvörn með nógu háu númeri. Annars misstir þú af Kvenréttindadeginum 19.júní sem var í gær. Þá hefðir þú þurft að skipta úr appelsínugulu yfir í bleikt!

  4. 4 Berglind Jun 21st, 2006 at 12:22 am

    Þú ert heppin að hafa komist í sólbað! Hér hefur ekki komið sól í lengri tíma:( En það á víst að bætast úr því á morgun, eða svo segir spáin. Ég treysti bara á að þú komir með sólina með þér heim!!!

Leave a Reply