Það rignir og rignir

Ég skil ekki veðrið hérna úti. Það var sól og hiti eina helgi en núna er bara endalaus rigning og leiðindi. Svona týpískt íslenskt-skítaveður eins og það kallast.

Ég held að ég hafi keypt mína fyrstu regnhlíf þegar ég flutti til USA seinasta haust. Á Íslandi hafði ég aldrei notað regnhlíf, enda átti ég bíl sem að er betra en að eiga 10 regnhlífar!

Núna hef ég ekki efni á bíl og fjárfesti því í regnhlíf í staðinn. Ég er samt greinilega ekki orðin nógu mikil Manhattan manneskja til að finna á mér hvenær mun rigna. Ég virðist alltaf gleyma að taka regnhlífina með mér þegar það rignir og verð alltaf rennandi blaut. Fólk hér úti er með einhvern innbyggðan radar, 1mín áður en það fer að rigna eru allir skyndilega búnir að opna regnhlífina sína. Mjög merkilegt!

Í gær gerðumst við Angelien túristar og fórum með nýju regnhlífarnar á Hard Rock og svo í bíó á Times Square i gær. Sáum The-Break-Up. Fyndin á köflum en svoldið hæg.

Jæja, farin að vinna!

Knús til allra,

Þóra

1 Response to “Það rignir og rignir”


  1. 1 Ásdís Jun 9th, 2006 at 3:45 pm

    hehe já ég man líka aldrei eftir þessari regnhlíf. Æ það drepur mann ekki að blotna, þótt það sé RENNblotna;)

Leave a Reply