Archive for June, 2006

Ekki drukknuð enn…

Ef ske kynni að einhver hefði áhyggjur þá er ég ekki drukknuð…. amk ekki enn!

Það eru mikil flóð hér á Austurströndinni og margir búnir að missa heimili sín. Svakalegt að fylgjast með þessu í fréttunum. Sem betur fer er ekki eins mikil rigning hér. Það er t.d. ekki rigning hér í augnablikinu, heldur bara mjög heitt og skýjað. Í gær rigndi samt meira en ég nokkru sinni upplifað, meira að segja nýja fína regnhlífin hafði lítið að segja!

Ekkert bólar enn á loftkælingunni og er ástandið í litlu holunni orðið verulega slæmt. Svei mér þá ef að þetta verður ekki fyrsta og seinasta skiptið sem að ég versla á eBay…. Að ganga inn í íbúðina er eins og að ganga á vegg! Stundum sakna ég þess að vera á Íslandi… og geta bara opnað glugga ef manni er heitt…..

Þóra

Afslöppun í sveitinni

Jæja, þá er enn einn mánudagurinn blessunarlega búinn í vinnunni. Í dag áttu nemendurnir að skila af sér lokaverkefninu. Verkefnið snérist um að koma með viðskiptahugmynd að nýrri vöru og hvernig best væri að "markaðsetja" hugmyndina til þess að heilla "kjölfestufjárfesta". Greinilega voru ekki allir að "fíla" verkefnið því að í könnunni sem að nemendurnir áttu að fylla út í kjölfarið komu komment eins og: “Too long labs”, “You should make the labs shorter and not so boring”, “I hated the labs!”. Nokkrir voru þó að átta sig á að könnunin var undir nafni og að "the Teaching Assistant" (TA) = ég! myndi að lokum fara yfir lokaprófið og skrifuðu því nokkrir “helpful TA”. Ein stelpan (sem að greinilega vildi bjarga sjálfri sér frá falli…) gekk meira að segja svo langt að skrifa: “I honestly didn’t like anything about this lab ….. but the TA!”. Gott svar!

Um helgina fór ég í smá ferðalag og heimsótti íslensk-amerísku ættingja mína í Up-State New York og í Boston. Gaman að komast aðeins út úr bænum en því miður gat ég ekki stoppað lengi. Planið að skreppa aftur til Boston við tækifæri og skoða þá borgina. Þessi heimsókn fór að mestu leyti í að sitja í bíl og rútu, sitja á veitingastöðum, slappa af og borða góðan mat. Sem að er reyndar alls ekki leiðinlegt ef út í það er farið!

Með hverjum deginum styttist í að ég komi til Íslands. Og enn er skýjað í New York. Ætli spá mín um að koma með sólina heim rætist? Og já, ætli nokkur lesi þetta bull mitt lengur? Wink

Mkv,

Þóra

Fyrsti fyrirlesturinn

Jæja, þá er fyrsta alvöru kennsludeginum mínum lokið. Jú, ég var alla seinustu önn að fara yfir heimaverkefni og í sumar hef ég verið að aðstoða í tölvutímum og svara spurningum en í dag hélt ég minn fyrsta fyrirlestur. Prófessorinn minn er á ráðstefnu og skyldi mig eftir til þess að ljúka sumarönninni.

Ég vissi hvað ég ætlaði að segja og var ekki beint stressuð en samt fannst mér þetta hálf skrítið og veit varla enn alveg hvernig þetta fór. Ég fékk reyndar engar spurningar en á móti kemur að ég sá allnokkra geispandi nemendur í salnum og er ekki frá því að gaurarnir í annarri röð hafi hrotið…….!

Frá byrjun ákvað ég þó að kenna því frekar um að klukkan var aðeins 10am heldur en að ég sé svona leiðinlegur fyrirlesari!

Þegar ég kenndi í MS þurfti ég að meðaltali að "sussa" 5 sinnum í hverjum tíma en þarna var svo mikil þögn að ég heyrði meira að segja sjálfa mig hugsa!

Eitt var þó líkt…nemendurnir voru glaðir að fá að hætta snemma!

Sólin heldur áfram að skína og það er orðið ólíft í íbúðinni okkar. Það er svo heitt að maður svitnar við að snúa sér við! Við ákváðum því að panta okkur litla loftkælingu á Ebay. Hvort að hún komi, hvort að hún virki og hvort að við getum sett hana saman er svo bara seinni tíma vandamál! Á okkar heimili er nefnilega framkvæmt fyrst… og hugsað svo (eða ekki?!)

Um helgina á að vera þrumuveður! Ég er ekki alveg að fatta hver stjórnar veðrinu hér því að það virðist alltaf vera betra veður um helgar en á virkum dögum. Ég verð því líklega að bíða með frekari sólböð þangað til heima á Íslandi. Ég er nefnilega búin að lofa Berglindi (og fleirum!) að taka sólina með mér heim…

…..og já, það styttist í að ég komi heim. Á bókað flug 15.júlí!

Knús til allra,

Þóra

Strandarferð

Jæja, enn ein helgin liðin og vinna á morgun. Mér líkar hreint ekki við mánudaga… og reyndar finnst mér sunnudagskvöld eiginlega enn verri. Því að á sunnudagskvöldum fatta ég alltaf hve mikið ég ætlaði að gera um helgina og hve lítið ég virkilega gerði að viti….

Á föstudaginn var hátíð í litlu íbúðinni þegar Hollendingar unnu Fílabeinsströndina á HM. Leikurinn var sýndur í hádeginu á bandarískum tíma og því hollenskur hádegismatur; brauð með jarðaberjum og flórsykri.

Í dag var sól og við Angelien fórum á ströndina, Point Pleasant (Jersey Shore). Þrátt fyrir að ferðalagið tæki 2 tíma hvora ferð (af hverju stoppa þessar lestar alltaf svona oft?!) var þetta brilliant dagur. Ég lá í sólinni og las slúðurblöð, brann (vonandi ekki alvarlega þó!) og borðaði risa krabba á sjávarréttarstað.

Núna sit ég (tómaturinn) við viftuna með after-sun flöskuna í fanginu….

…þó með ofurtrú á að kraftaverk gerist og ég verði minna rauð á morgun! Innocent

Þóra

Homeless Shelter

Í dag var ég bæði góð við fátækt fólk og Angelien! Hún þarf að vinna í Homeless Shelter fyrir skólann og ég fór með henni fyrsta daginn. Við röðuðum pottum og pönnum í skápa og sáum svo um að gefa heimilislausa fólkinu að borða. Ég sá um brauðið og hún um kleinhringina!

Alltaf gaman að gera góðverk.

Að öðru leyti er lítið að frétta. Ég er enn að bíða eftir sólinni en ég bind MIKLAR vonir við sól um helgina. Alveg kominn tími á að ég fái einhvern lit, ég er enn skemmtilega gegnsæ.

Prófessorinn minn, Fröken Fix var í óvenju góðu skapi í seinustu viku. Ég spurði hana nefnilega um barnið hennar. Hún sýndi mér ótal barnamyndir. Alltaf gott trix að leyfa yfirmönnum að tala um sjálfa sig….

Kær kveðja til allra,

Þóran

Það rignir og rignir

Ég skil ekki veðrið hérna úti. Það var sól og hiti eina helgi en núna er bara endalaus rigning og leiðindi. Svona týpískt íslenskt-skítaveður eins og það kallast.

Ég held að ég hafi keypt mína fyrstu regnhlíf þegar ég flutti til USA seinasta haust. Á Íslandi hafði ég aldrei notað regnhlíf, enda átti ég bíl sem að er betra en að eiga 10 regnhlífar!

Núna hef ég ekki efni á bíl og fjárfesti því í regnhlíf í staðinn. Ég er samt greinilega ekki orðin nógu mikil Manhattan manneskja til að finna á mér hvenær mun rigna. Ég virðist alltaf gleyma að taka regnhlífina með mér þegar það rignir og verð alltaf rennandi blaut. Fólk hér úti er með einhvern innbyggðan radar, 1mín áður en það fer að rigna eru allir skyndilega búnir að opna regnhlífina sína. Mjög merkilegt!

Í gær gerðumst við Angelien túristar og fórum með nýju regnhlífarnar á Hard Rock og svo í bíó á Times Square i gær. Sáum The-Break-Up. Fyndin á köflum en svoldið hæg.

Jæja, farin að vinna!

Knús til allra,

Þóra

Smá Update

Nú er barasta kominn júní og líklega kominn tími á nýtt blogg. Stefni á að vera miklu duglegri að blogga í júní en maí!

Smá "update" hvað hefur gerst síðan síðast:

Leigusalinn skildi eftir skilaboð í póstkassanum: "It is against the law to put the fire escape on fire." Það hefur ekki verið grillað síðan…

Sólin er farin að skína! Reyndar virðist hún aðallega skína á virkum dögum milli 9 og 5, sem að er einmitt sá tími sem að ég er í vinnunni… 25C og raki er ekki mjög skemmtilegt vinnu umhverfi… Um helgar er hinsvegar aðallega skýjað og rigning. Á föstudaginn var t.d. brjálað þrumuveður og sat ég því að mestu heima (við viftuna!) að horfa á sjónvarpið!

Ég er þó bjartsýn (eins og alltaf!) og stefnan er að leigja bíl næstu helgi og keyra á ströndina.

Við Angelien fórum í Jersey Garden mall-ið um helgina og keyptum okkur bikiní, sandala og sólarvörn. Því miður er ég ekki orðin bikini-tilbúin sem er kannski ekki skrítið þar sem að ég hef ekki farið í leikfimi í heila eilífð. Ég var að hugsa um að kaupa mér viku-kort í leikfimi (það gerði ég í Köben, en eins og allir vita tekur aðeins viku að verða bikini-klar í Danmörku!) en hætti við þegar ég horfði á fréttirnar í fyrradag. Þar var aðal fréttin: "Improve your life with vitamins". Ef að maður hefur ekki tíma til að sofa nóg er ráðið að taka C-vítamín, ef að maður vill geta drukkið mikið áfengi er nóg að taka bara B-vítamín og ef að maður nennir ekki að hreyfa sig þá er D-vítamín málið!! Eldhússkápurinn minn er núna fullur af vítamínum Smile

Upplýsandi þessar fréttir hér í USA! Aðalfréttin í gær var: "Too much sun can damage your health!". Fyrir þá sem ekki trúa mér þá fylgdi fréttinni að það séu vondir geislar í sólarljósi sem geta valdið krabbameini…. Þið passið ykkur á þessu dúllurnar mínar!

Mkv, Þóra

p.s. Berglind fær sérstakar kveðjur: Til hamingju með nýju íbúðina Kiss