Eurovision samsæri?

Ég fékk (sem betur fer?) flensu í morgun og þurfti því að hætta snemma í vinnunni. Bót í máli að ég náði þá að horfa á Eurovision. Sem betur fer því að annars hefði Sibba vinkona líklega seint fyrirgefið mér, en hún er mesti Eurovision aðdáandi sem ég þekki!

Ég lofaði Sibbu að halda með Finnum og Úkraníumönnum en ég efa samt að ég horfi á lokakeppnina. Þetta minnir mig á í fyrra þegar ég Berglind, Siggi og fleiri vorum búin að skipuleggja mikið Eurovision djamm… sem að klúðrast svo alveg þegar við duttum úr keppninni. Ætli þetta sé ekki bara samsæri hjá Evrópubúum að kjósa okkur alltaf úr keppninni þegar við eigum skilið að vinna?

Við Angelien fórum á nýju Lindsay Lohan myndina Just My Luck í vikunni. Ég get nú ekki sagt að ég mæli með henni en okkur fannst samt skondið að sjá hana þar sem að við erum svo einstaklega heppnar alltaf! Á leiðinni í bíó stoppaði Angelien á McDonalds. Á hamborgarann vantaði kjötið… Telst það ekki hámark óheppninnar?

4 Responses to “Eurovision samsæri?”


  1. 1 Ásdís May 19th, 2006 at 2:55 am

    kjötið á McDonalds er nú yfirleitt ekkert til að hrópa húrra fyrir svo veit nú ekki hvort það er hámark óheppinnar, en fyndið samt;) já ég skil nú bara aldrei afhverju sumir komast áfram, t.d. eins og Albanía það var hræðilegt lag! Frekar fyndið samt að þótt Silvía væri þarna í ofur glamúrgallanum voru sko margir sem náðu nánast að toppa búninginn hennar glamúrlega séð (og voru því miður ekkert að grínast:)). Láttu þér nú batna!

  2. 2 Berglind May 19th, 2006 at 11:27 am

    Ég held að maður verði nú að fara að hætta að gera sér einhverjar vonir í þessari eurovision-keppni!! Þetta gengur ekki neitt:(

  3. 3 Mamma May 20th, 2006 at 10:06 pm

    Það var nú samt flott að Finnarnir skyldu vinna!

  4. 4 Ég sjálf May 21st, 2006 at 11:34 pm

    Unnu Finnarnir?! En fyndið :) Ég missti af þessu.

Leave a Reply