Pirrandi stundum þessi tímamunur á USA og Íslandi. Á fimmtudaginn næsta hafði ég t.d. planað að sitja fyrir framan fartölvuna mína og horfa á Sylvíu Nótt (það er ef Eurovision verður sýnt á netinu?) en ég var að fatta núna að útsendingin byrjar víst kl. 3 á mínum tíma. Spurning hvort að yfirmaður minn, Fröken Fix, gefi mér frí?
Á fimmtudaginn spurði hún hvort að ég væri alveg örugglega verkfræðingur. "Maður hefði nú haldið að manneskja með þinn bakgrunn í vélaverkfræði myndi vita hvenær má ekki hafa kveikt á loftræstingunni!". Svo fékk ég 15 mín. fyrirlestur (með jöfnum, eðlisfræðilögmálum og alles!) um innviði loftræstitækja og hve hættulegt það er að kveikja á þannig tækjum þegar það er kaldara úti en inni.
Því miður er ég það óheppin að ég datt út í miðjum fyrirlestri og rankaði ekki við mér fyrr en ég heyrði: "You understand what I’m saying?" Þá var víst ekkert annað í stöðunni en að spila Íslands-spilinu út eina ferðina enn….
….."Uuuu, yes, I do, thanks for that! I just didn´t know because I come from ICELAND, and therefore I need my air conditioner on 24/7"
Svei mér þá að hún hafi þá ekki brosað pínku ponsu lítið
hehe
eurovision á a.m.k. að vera sýnd á http://www.bbc.co.uk/radio2/eurovision/2006/
Einmitt í sömu vandræðum hér, á maður að setjast niður og horfa á sjónvarpið á hádegi og skrópa í tíma eða vera skynsamur?:S Eða get ég sannfært mig um að þetta sé once in a life time thing;) Vildi að það væri hægt að horfa á endursýningu eða e-ð.
Það væri nú gaman að fræðast meira um þessi eðlisfræðilögmál!
Ásdís: Þetta er “ómetanleg” lífsreynsla. Ég mæli með að við tilkynnum okkur bara báðar veikar eftir hádegi á fimmtudag
Mamma: Ég datt því miður út í miðju lögmáli! Ætli þetta hafi ekki verið eitthvað Flæði inn = Flæði út dæmi 