Nýja vinnan mín

Jæja, nú er mín barasta búin með þessa önn. Jibbíí Jei! Og því hálfnuð með þetta blessaða nám (gefið að ég nái nú öllu!). Í dag var því fyrsti alvöru "vinnudagurinn". Í raun hef ég verið að vinna með skólanum alla þessa önn en í sumar þarf ég að vinna meira, en sem betur fer enginn skóli.

Ég á að sjá um hagverkfræðikúrs í sumarskólanum. Ég reyndar kenni hann ekki en ég hef það starf að gera alla leiðinlegu hlutina. Ég á sem sagt að búa til glærurnar, prófin, heimadæmin, vera með fyrirspurnartíma og fara yfir öll verkefni og próf. Sem sagt: Gera ALLT!

Í fyrsta tíma verður meira að segja dreift leiðbeiningum sem á stendur: "Do not ask Dr. Vix about anything! Ask the TA about everything. Dr. Vix will not answer any questions about this course, that is the TAs responsibility!”

Ég er eiginlega hálf farin að sjá eftir því að hafa tekið þessa vinnu.. En kannski verður þetta ágætt. A.m.k. lítur þetta vonandi vel út á CV-inu..

…..það er amk það sem ég tel sjálfri mér trú um þessa dagana! Wink

2 Responses to “Nýja vinnan mín”


  1. 1 Ásdís May 10th, 2006 at 2:01 am

    Þú fékkst s.s einn af þessum erfiðu kennurum:S Lenti í því á vetrarönninni (þurftum að gera allar lausnir sjálf þótt það væri til “solution manual” og annað asnalegt). Annars lærir maður helling á því svo það er ágætt eftir á:D

  2. 2 Ég sjálf May 10th, 2006 at 2:28 am

    Ásdís: jamm, ég er loksins farin að læra hagverkfræðina! Ég viðurkenni samt alveg að það hefði verið sniðugra að læra þetta á sínum tíma þegar ég tók þennan áfanga sjálf… *hóst*

Leave a Reply