Archive for May, 2006

Burning down the house…

Við Angelien höfum talað um það í nokkra mánuði hvað það væri nú gaman að grilla þegar það kæmi betra veður. Ég kann nú reyndar ekkert að grilla en ég heillaðist samt af hugmyndinni þegar Ella, mamma Angelien, gaf okkur íslenskt lambakjöt og þetta fína litla kolagrill. Við erum reyndar ekki með garð né svalir en það liggur hins vegar þessi fíni brunastigi fyrir utan eldhúsgluggann okkar….

Við gerðum allt tilbúið fyrir glæsilegt barbecue og kveiktum svo í grillinu á brunastiganum. Það gekk hins vegar OF vel því að allt í einu kom stórt bál frá grillinu og aðeins 2 mínútum seinna dinglaði nágranni hjá okkur.

Nágranni: "Something is on fire in your house!!"

Angelien: "I know"

Þögn.

Hurð lokast. 

Við vildum ekki hræða nágrannana meira svo að við ákváðum að minnka eldinn með því að setja lokið á. Við vorum samt hræddar um að kæfa eldinn alveg svo við settum lokið aðeins á að hálfu leyti…

Helv**** lokið brann! Angelien hellti þá vatni yfir grillið og slökkti eldinn. 

Eftir stendur:

Við kveiktum í brunastiganum…

Lambakjötið var steikt í George Forman mínútugrillinu… 

Eurovision samsæri?

Ég fékk (sem betur fer?) flensu í morgun og þurfti því að hætta snemma í vinnunni. Bót í máli að ég náði þá að horfa á Eurovision. Sem betur fer því að annars hefði Sibba vinkona líklega seint fyrirgefið mér, en hún er mesti Eurovision aðdáandi sem ég þekki!

Ég lofaði Sibbu að halda með Finnum og Úkraníumönnum en ég efa samt að ég horfi á lokakeppnina. Þetta minnir mig á í fyrra þegar ég Berglind, Siggi og fleiri vorum búin að skipuleggja mikið Eurovision djamm… sem að klúðrast svo alveg þegar við duttum úr keppninni. Ætli þetta sé ekki bara samsæri hjá Evrópubúum að kjósa okkur alltaf úr keppninni þegar við eigum skilið að vinna?

Við Angelien fórum á nýju Lindsay Lohan myndina Just My Luck í vikunni. Ég get nú ekki sagt að ég mæli með henni en okkur fannst samt skondið að sjá hana þar sem að við erum svo einstaklega heppnar alltaf! Á leiðinni í bíó stoppaði Angelien á McDonalds. Á hamborgarann vantaði kjötið… Telst það ekki hámark óheppninnar?

Hey Jude

Á morgun byrjar sumarkúrsinn "minn" þannig að ég þarf að fara og kynna mig fyrir nemendunum eldsnemma í fyrramálið. Prófessorinn minn er búin að spyrja mig tvisvar hvernig hún eigi að bera fram Palsdottir og það gengur langt í frá vel…

…ég er þó mjög róleg yfir því enda er ég sjálf einstaklega léleg að bera fram erlend nöfn. Ég kallaði til að mynda S-Kóresku konuna sem ég bjó með á seinustu önn "Hey Jude" í rúma 3 mánuði því að ég gat engan veginn munað hvernig ég ætti að bera fram nanfið Hehijou!

Ég reyni að blogga á morgun og segja frá hvernig gekk í fyrstu kennslustundinni.

Svo er mamma hennar Angelien í heimsókn og við erum því komnar með fullan frysti af íslenskum fisk og fullan skáp af íslensku nammi! Nammi namm :)

I come from Iceland

Pirrandi stundum þessi tímamunur á USA og Íslandi. Á fimmtudaginn næsta hafði ég t.d. planað að sitja fyrir framan fartölvuna mína og horfa á Sylvíu Nótt (það er ef Eurovision verður sýnt á netinu?) en ég var að fatta núna að útsendingin byrjar víst kl. 3 á mínum tíma. Spurning hvort að yfirmaður minn, Fröken Fix, gefi mér frí?

Á fimmtudaginn spurði hún hvort að ég væri alveg örugglega verkfræðingur. "Maður hefði nú haldið að manneskja með þinn bakgrunn í vélaverkfræði myndi vita hvenær má ekki hafa kveikt á loftræstingunni!". Svo fékk ég 15 mín. fyrirlestur (með jöfnum, eðlisfræðilögmálum og alles!) um innviði loftræstitækja og hve hættulegt það er að kveikja á þannig tækjum þegar það er kaldara úti en inni.

Því miður er ég það óheppin að ég datt út í miðjum fyrirlestri og rankaði ekki við mér fyrr en ég heyrði: "You understand what I’m saying?" Þá var víst ekkert annað í stöðunni en að spila Íslands-spilinu út eina ferðina enn….

….."Uuuu, yes, I do, thanks for that! I just didn´t know because I come from ICELAND, and therefore I need my air conditioner on 24/7"

Svei mér þá að hún hafi þá ekki brosað pínku ponsu lítið

Að halda í sér andanum….

Er David Blaine æði á Íslandi? Hérna er allt búið að vera vitlaust í 3 vikur yfir þessu "Drowned Alive" fári öllu. David Blaine er sem sagt töframaður sem að var í viku í vatni og reyndi að halda í sér andanum í 9 mínútur. Þessar 9 mínútur höfðu verið auglýstar nánast stanslaust á ABC sjónvarpsstöðinni hér í NYC í tvær vikur. Niðurtalningin fyrir atburðinn tók svo heila 4 klukkutíma. Kanarnir gera náttúrulega ALLT með trompi!

Ég horfði á útsendinguna og rosalega liðu þessar 7 mínútur sem að hann hélt í sér andanum lengi! Þetta minnti mig af einhverjum ástæðum á skólasundið í Hagaskóla! Ég var alltaf léleg að halda í mér andanum og sé því Dóru sundkennara fyrir mér á bakkanum að skipa mér að kafa lengur!

Úff! :)

Nýja vinnan mín

Jæja, nú er mín barasta búin með þessa önn. Jibbíí Jei! Og því hálfnuð með þetta blessaða nám (gefið að ég nái nú öllu!). Í dag var því fyrsti alvöru "vinnudagurinn". Í raun hef ég verið að vinna með skólanum alla þessa önn en í sumar þarf ég að vinna meira, en sem betur fer enginn skóli.

Ég á að sjá um hagverkfræðikúrs í sumarskólanum. Ég reyndar kenni hann ekki en ég hef það starf að gera alla leiðinlegu hlutina. Ég á sem sagt að búa til glærurnar, prófin, heimadæmin, vera með fyrirspurnartíma og fara yfir öll verkefni og próf. Sem sagt: Gera ALLT!

Í fyrsta tíma verður meira að segja dreift leiðbeiningum sem á stendur: "Do not ask Dr. Vix about anything! Ask the TA about everything. Dr. Vix will not answer any questions about this course, that is the TAs responsibility!”

Ég er eiginlega hálf farin að sjá eftir því að hafa tekið þessa vinnu.. En kannski verður þetta ágætt. A.m.k. lítur þetta vonandi vel út á CV-inu..

…..það er amk það sem ég tel sjálfri mér trú um þessa dagana! Wink

Ekkert að frétta í prófum…

Ég vaknaði með hausverk í morgun og var alveg að hugsa um að liggja bara upp í rúmi og skrópa bæði í vinnunni og hagverkfræðilokaprófinu mínu í dag. Ég var meira segja komin með þessa fínu afsökun, í dag er nefnilega "No Immigration Day" en þá leggja innflytjendur niður vinnu til að sýna hve mikilvægir þeir eru bandarísku samfélagi.

Ég efa samt að hagverkfræðikennarinn hafi sérstaka samúð með útlendingum… Ég efa meira að segja að hann hafi samúð með nokkrum, nema ef til vill því fólki sem er óheppið í fjárfestingum og nær ekki 15% lágmarks ársávöxtun á hlutabréfin sín… Hann minnist oft á "poor those people" í fyrirlestrum….

Ég lærði annars alla helgina og skilaði tölfræði prófinu mínu í gærkvöldi. Prófið var frá 6 pm á laugardegi til 6 pm á sunnudegi sem að er undarlegasti tími sem að ég hef tekið próf á. Kenningin í bekknum er að við séum í raun að taka próf á kínverskum tíma…. Sérlega góð kenning í ljósi þess að kennarinn er frá Hong Kong….

Í verkefnastjórnun er bæði lokaritgerð og lokapróf. Mér gekk ekkert sérlega vel í lokaprófinu enda var það krossapróf og mér gengur sjaldnast vel í þeim. Ég fékk hins vegar að heyra í tímanum sem prófið var að ég hefði verið "númer 2" í "mid-terminu". Þýski vinur minn tilkynnti nefnilega röð efstu 5 manna! Hann hafði nefnilega gengið á milli allra og spurt hve mörg stig þeir hefðu fengið á prófinu og raðað öllum í sæti. Svei mér þá ef hann reiknaði ekki meðaleinkunn og staðalfrávik líka….

Merkilegt nokk þá var gaurinn sjálfur efstur í prófinu….

Annað kvöld eigum við að skila lokaritgerðinni í verkefnastjórnun. Mín fjallar um Perluna og er því miður enn í vinnslu. Vonandi klárast hún á seinustu stundu…. Þýski gaurinn (sem að á sér augljóslega meiri frítíma en annað fólk) tilkynnti líka í tímanum að hann væri löngu búinn með sína ritgerð og væri bara að bíða eftir að prófessorinn hans í Berlin myndi lesa hana yfir og koma með tillögur um breytingar.

Ég er að spá í að láta mömmu lesa yfir mína en ákvað að tilkynna ekki það trick í tímanum….

Þóran