Til hamingju með afmælin!

Ég er vanalega manneskja sem að man eftir afmælum vina minna. Ég man oftast eftir að kaupa gjöf eða að minnsta kosti hringja og syngja afmælissönginn! ;)

Það sýnir kannski skýrast hve brjálæðislega mikið ég hef haft að gera í apríl að ég hef ekki hringt eitt einasta símtal til Íslands….

Betra er þó seint en aldrei og því langar mig að senda þeim fjórum sem gleymdust sérstaka kveðju….

Stebbi bróðir. Uppáhaldsbróðir minn varð 31 í byrjun apríl. Hann segist vera orðinn of gamall fyrir afmælisgjafir en í staðinn lofa ég að passa fyrir hann í sumar þegar ég kem til Íslands!

Siggi. Hann varð hvorki meira né minna en 30 ára í apríl! Því miður var ég ekki á landinu til að fagna með honum en vonandi get ég bætt það upp í sumar. Siggi er sem stendur á Akureyri að bjarga heiminum en stefnan er tekin á nokkur klassísk hörkudjömm þegar við hittumst næst í Reykjavík!

Sibba. Hún varð 26 ára fyrir nokkrum dögum (þrátt fyrir að líta enn út fyrir að vera 17!). Eins og hún veit þá getur hún flogið til New York og tekið á móti pakkanum sem býður eftir henni! Ef hún kemur ekki neyðist ég til að kíkja í sveitina til hennar í sumar, með tilheyrandi hestaferðum (og harðsperrum!). Sakna þín Sibba mín :)

Seinast en ekki síst þá á Ólína litla 1árs afmæli í dag, 23. apríl! Hún fékk gjöf senda frá USA og mér skylst að hún sé meira að segja búin að opna pakkann.

Þóran

3 Responses to “Til hamingju með afmælin!”


  1. 1 Sigurður Hólm Gunnarsson Apr 23rd, 2006 at 8:42 pm

    Takk fyrir kveðjuna Þóra mín. Ég ætla samt að fá að eiga inni afmælissönginn frá þér :)
    Bestu kveðjur til US of A

  2. 2 Mamma Apr 23rd, 2006 at 9:33 pm

    Þú misstir af þessarri dásamlegu skúffuköku með bleiku kremi og einu kerti. Kannski bakar þú eina svona í sumar!

  3. 3 sibba Apr 25th, 2006 at 11:10 pm

    Hæ, og takk takk! Ég á a.m.k. erindi til N.Y. núna, en annars er langbest að þú komir bara með pakkann í sveitina. þú stóðst þig nú svo frábærlega vel í síðustu hestaferð að þú verður að fara að rifja upp taktana frá því síðast.

Leave a Reply