Gleðilega páska

Helginni eyddi ég í hópverkefni fyrir skólann. Þegar ég kom svo dauðþreytt heim í kvöld (sunnudagseftirmiðdagur) var Angelien húsmóðir búin að setja íslenska lærið í ofninn! Við brúnuðum svo kartöflur, opnuðum grænar baunir og rauðvínsflösku og skáluðum fyrir páskunum. Ég át að sjálfsögðu yfir mig enda ekki oft sem að maður fær “almennilegan” mat hér í Ameríkunni. Brilliant kvöld.

Næstu dagar fara í lærdóm og mikið stress í gangi en sem betur fer á ég ennþá páskaegg til þess að stytta mér stundir.

Gleðilega páska!

 

5 Responses to “Gleðilega páska”


  1. 1 Mamma Apr 17th, 2006 at 3:11 pm

    Gott að heyra að lambalærið bragðaðist svona vel. Við pabbi þinn borðuðum hins vegar “amerískan” mat á Páskadag því þá snæddum við kalkún heima hjá Láru mömmu Steinunnar Þóru. Hann var líka frábær!

  2. 2 Helga Apr 17th, 2006 at 6:32 pm

    Gleðilega páska Þóra mín, gangi þér nú vel í stressinu og prófunum *knús*

  3. 3 Atli Apr 17th, 2006 at 10:11 pm

    Gleðilega páska! Gangi þér sem allra best í við lesturinn! Bætti persónulegt met þessa páskanna, borðaði Nóa og Sírús nr. 7 egg á innan við 10mín! ;)

  4. 4 Berglind Apr 17th, 2006 at 11:51 pm

    Ég borðaði yfir mig um páskana!! Pottþétt búin að bæta á mig einhverjum kílóum:( Planið er að bæta úr því í sumar og vera ýkt dugleg í ræktinni! Ég hef nefnilega ekki hreyft mig í vetur, meiri letin í manni!

  5. 5 Ég sjálf Apr 18th, 2006 at 2:46 am

    Takk fyrir kveðjurnar! Ég borðaði yfir mig um páskana og er enn að! Enda á maður að borða vel af “sukk-mat” í prófum ;)

Leave a Reply