Students’ Syndrom

Í dag er Skírdagur og ef ég væri á Íslandi væri ég því líklega núna í  páskafríi. Hér úti er aftur á móti ekkert páskafrí annað en það að  kennsla verður felld niður á morgun. Föstudagur er eini dagurinn sem að  ég er ekki í skólanum og græði ég (eða tapa?) því ekkert á því.  Bandaríkjamenn virðast heldur ekkert halda upp á páskana fyrir utan það  að flest apótek hér úti hafa breytt um lit, eru komin með gula  innréttingu og farin að selja súkkulaði kanínur. Ég hef reyndar ekki  freistast til að kaupa mér kanínu því að ég á þetta fína stóra Nóa  egg heima. Ég hlakka til að opna það.

Í verkefnastjórnun í vetur hefur mikið verið rætt um "Students’ Syndrom". Það hugtak snýr að því að líkt og nemendur byrja alltaf á  verkefnum á seinustu stundu (samanber að halda sér vakandi og lesa alla  nóttina daginn fyrir próf) þá byrji fólk í fyrirtækjum ekki á verkefnum  fyrr en rétt fyrir skiladag. Pælingin er að þeim mun lengri "deadline"  sem að fólk fær í verkefni, þeim mun seinna sé þeim skilað, því að  tölfræðin segir víst að aðeins 5% fólks skili af sér verkefnum fyrir  "deadline" jafnvel þó að það gæti það auðveldlega.

Ég hef ekki alveg verið sátt við þetta hugtak og hafði meira að segja  verið að spá að skrifa ritgerð um hve ofmetið þetta hugtak væri og að  flestir starfsmenn í fyrirtækjum (líkt og nemendur í skólum) vilji  standa sig vel og leggi sig því fram við að skila af sér verkefnum eins  fljótt og unnt er!

Nú er hins vegar komið upp vandamál…

Ég var nefnilega að vakna upp  við vondan draum…..  Ég á að skila af mér öllum lokaverkefnum mínum eftir 2 vikur og fara  svo í lokaprófin eftir 3 vikur og ég er ekki byrjuð á neinu! Hvers  vegna ekki? Mér hefur einhvern veginn alltaf þótt svo langt í að þessi önn  myndi klárast! Þannig að það stefnir í andvökunætur, prófstress og allt  of mikla kaffidrykkju hjá mér næstu 3 vikurnar.

Klassískt "Students’ Syndrom". ,ekki satt?!

Þóran

0 Responses to “Students’ Syndrom”


  1. No Comments

Leave a Reply