Archive for April, 2006

Málshættir dauðans

Ég fæ alltaf glataða málshætti í páskeggjum. Ég er náttúrulega nörd og því alltaf spennt að sjá hvaða málshátt ég fæ. Ég verð hins vegar oftast fyrir vonbrigðum. Í fyrra fékk ég til dæmis "Bylur hæst í tómri tunnu" og varð massa svekkt ;)

Í ár fékk ég 2 páskaegg frá Íslandi. "Fénar farandi, sveltur sitjandi" og "Hægara er að kenna heilræðin er halda þau". Sá seinni á kannski ágætlega vel við núna í miðjum prófum, þegar maður er á seinustu stundu með allt.

Næsta ár panta ég að fá málshátt sem hljómar eitthvað á þessa leið: "Þér mun hlotnast mikill auður…"

Og já, svona rétt í lokin fyrir þá sem ekki vita verð ég hér í Ameríku fram í júlí. Ég verð að vinna upp í skóla. Ég blogga kannski meira um það við tækifæri….

Mkv,

Þóra  

Til hamingju með afmælin!

16 fellibylir munu ganga yfir Bandaríkin í ár!

Gleðilega páska

Students’ Syndrom

Mamma og brjálaði Þjóðverjinn

NBA leikur og ný klukka