It’s No Rocket Science

Skólinn minn, Stevens, er voða montinn af því að vera í miklum tengslum við atvinnulífið. Vegna þessa ráða þeir oft prófessora sem hafa "meikað það" í verkfræðiheiminum. Margir þeirra eru mjög góðir en persónulega finnst mér sumir þeirra gleyma að þeir séu ráðnir til að kenna….

Hagverkfræði prófessorinn minn er til dæmis of upptekinn af því að græða peninga til þess að mæta í fyrirlestra. Hann mætir aðeins í annað hvort skipti og kennir eftir því lítið.

Þegar hann mætir finnst honum skemmtilegast að segja sögur af því hvernig hann varð ríkur af húsnæðisbraski og hve frábær kennslubókin er (sem að hann samdi sjálfur). Bókin fékk nefnilega verðlaun fyrir hundrað árum sem besta kennslubók nýliða og lifir sá gamli enn á því. Þegar hann komst að því að ég er aðstoðarkennari við deildina kallaði hann mig upp og áritaði eintakið mitt óbeðinn: "Thora; May this Book bring you Success!". Hann sagði svo við mig hátt og skýrt: You should keep on to this copy. It might become a valuable piece one day!

Ekki er þó allir sáttir við að fá enga kennslu og kvartaði einn strákur í hópnum og spurði hvort að við gætum ekki annað hvort fengið fleiri fyrirlestra eða þá að efnið til lokaprófs yrði minnkað.

Prófessorinn horfði á hann í smá stund og sagði svo: "Come on guys, you can not possibly need help with this! It’s Economics, it’s No Rocket Science!"

Í vikunni er ég að fara í Mid-Term hagverkfræði. Þar sem ég sit heima og kann EKKERT er ég fegin að ég sé þó amk ekki að læra neitt flókið….

2 Responses to “It’s No Rocket Science”


  1. 1 Helga Mar 28th, 2006 at 5:18 pm

    haha, góður sá gamli! It’s no Rocket Science! alveg brill ;) gangi þér vel í prófinu, þú þarft svosum engar svoleiðis óskir þar sem þetta er svo létt :þ

  2. 2 Dadi Mar 29th, 2006 at 4:04 pm

    Getur thu tha bara ekki tekid thetta i fjarnaemi eda proflaust, augljostlega tinganslaust ad profa ur thessu. Maetingarskylda nog? Ja,nei, thad er DTU. Thar “laeri” eg 3ja hvert ar!

Leave a Reply