Archive for March, 2006

It’s No Rocket Science

Skólinn minn, Stevens, er voða montinn af því að vera í miklum tengslum við atvinnulífið. Vegna þessa ráða þeir oft prófessora sem hafa "meikað það" í verkfræðiheiminum. Margir þeirra eru mjög góðir en persónulega finnst mér sumir þeirra gleyma að þeir séu ráðnir til að kenna….

Hagverkfræði prófessorinn minn er til dæmis of upptekinn af því að græða peninga til þess að mæta í fyrirlestra. Hann mætir aðeins í annað hvort skipti og kennir eftir því lítið.

Þegar hann mætir finnst honum skemmtilegast að segja sögur af því hvernig hann varð ríkur af húsnæðisbraski og hve frábær kennslubókin er (sem að hann samdi sjálfur). Bókin fékk nefnilega verðlaun fyrir hundrað árum sem besta kennslubók nýliða og lifir sá gamli enn á því. Þegar hann komst að því að ég er aðstoðarkennari við deildina kallaði hann mig upp og áritaði eintakið mitt óbeðinn: "Thora; May this Book bring you Success!". Hann sagði svo við mig hátt og skýrt: You should keep on to this copy. It might become a valuable piece one day!

Ekki er þó allir sáttir við að fá enga kennslu og kvartaði einn strákur í hópnum og spurði hvort að við gætum ekki annað hvort fengið fleiri fyrirlestra eða þá að efnið til lokaprófs yrði minnkað.

Prófessorinn horfði á hann í smá stund og sagði svo: "Come on guys, you can not possibly need help with this! It’s Economics, it’s No Rocket Science!"

Í vikunni er ég að fara í Mid-Term hagverkfræði. Þar sem ég sit heima og kann EKKERT er ég fegin að ég sé þó amk ekki að læra neitt flókið….

Heilagur Patrekur og Wunderbar

Ameríska þjóðin er greinilega farin að lesa bloggið mitt því að andarunginn Kevin var kosinn út úr Idolinu. Gaman af því! Rétt í þessu hafði Sibba vinkona svo samband frá Íslandi og sagði mér að það væri "bandarískt þema" í íslenska Idolinu í kvöld. Vonandi heillast einhverjir og ákveða að koma í heimsókn. Heyrst hefur að helgarferðir til NYC séu á "gjafverði" hjá Flugleiðum….

Þar sem að ég er bíllaus neyðist ég til þess að versla flestan mat í pínku ponsu litlu hverfisversluninni hjá honum Willy. Willy greyið er svolítið skrítinn en hefur af einhverjum ástæðum tekið ástfóstri við okkur Angelien. Honum finnst nefnilega frábært að við séum frá Íslandi því að eins og allir vita er töluð þýska á Íslandi…. Við höfum oft reynt að leiðrétta það en Willy hlustar ekki enda elskar hann þýsku og telur sig vera altalandi….

Í hvert sinn sem við komum í búðina segir Willy nákvæmlega sömu setninguna: "Wunder Sie!" Special discount to you my Frauleine. You are my Wunderbar!" Hress gaur hann Willy….

Í seinustu viku var ég í Spring Break. Ég kann aldeilis að velja mér tíma til þess að vera lasin því að ég lá í flensu mest allt fríið. Ég hressti mig þó við á St. Patrick’s degi, en þá kom Laufar, vinur hennar Angelien í heimsókn. Við Angelien skelltum okkur í St.Patricks-bolina okkar, elduðum pítu með íslenskri pítusósu og skáluðum með Laufari undir dúndrandi tónlist frá Sálinni og Bubba! Ótrúlegt hvað íslensk tónlist hljómar vel svona í útlöndum….

Þóra

American Idol

Ég heiti Þóra og ég er sjónvarpssjúklingur!

Tja, þessi setning er nú ef til vill svolítið ýkt en ég verð engu að síður að viðurkenna að ég horfi mun meira á sjónvarpið en í fyrra. Í fyrra fór ég 1-2 svar í viku í bíó, í ár horfi ég svei mér þá á 1-2 sjónvarpsþætti á dag. Talandi um að fara úr öskunni í eldinn…

Desperate Housewives, Boston Legal og Grey’s Anatomy eru uppáhalds þættirnir mínir fyrir utan auðvitað allar verðlaunaafhendingar (Óskarinn og Emmy til dæmis) og American Idol! Þeir sem þekkja mig vel vita að ég var "hooked" á íslenska idol-inu og eyddi hverju einasta föstudagskvöldi seinustu 2 árin með Berglindi, Sigga og Matta fyrir framan Idol á risaskjá…

Nú hefur American Idol tekið við. Þriðjudagar eru orðnir hinu nýju Idol dagar í mínu lífi! Ég vona að þessir þættir séu sýndir heima á Íslandi enda brilliant söngvarar að keppa. Þessi litla Paris stelpa er t.d. frábær, sem og þessi "wannabe rock-ari"

Fátt fólk fer almennt í taugarnar á mér en þó er einn í þessari keppni sem að ég á erfitt með að þola… "Little Kevin" eða "Sexy Kevin" eins og hann er kallaður hér úti. Hann lítur út eins og kjúklingur, syngur ekki vel en Ameríka dýrkar hann og er farið að tala um hann sem hið nýja "kyntákn" í viðtölum. Ég er að spá í að finna mér nýjan uppáhalds sjónvarpsþátt því að ólíkt öðrum íbúum þessa lands lít ég ekki á Kevin sem mitt Heaven…..  

Jæja.. þetta var tilgangslausasta blogg mánaðarins!

Takk fyrir mig! Wink

Þóra

Skilríkjafár

Nú er hitinn í New York loks orðinn hærri en á Íslandi. Hér eru hitinn orðinn um 10-15C en því miður er líka töluvert rok og því enn langt í land að það megi tala um vor hér úti. Þetta er þó allt í rétta átt og því fer bráðlega að vera gaman að vera Íslendingur í útlöndum…. Því miður er íslenska krónan ekki jafn hress….

Bandaríkjamenn eru ótrúlega nákvæmir á því að ALLIR skulu sýna skilríki. Þegar maður fer í vínbúð, eða pantar sér vín á veitingastað þarf alltaf að sýna skilríki og til að komast inn á skemmtistaði þarf oft að sýna 2 skilríki til að komast inn (því að eitt er augljóslega ekki nógu traustvekjandi!). Ef maður ætlar að kaupa sér áfengi þarf svo að sýna skilríkin aftur. Sumir staðir hafa þó það fyrirkomulag að gefa fólki armband þegar það kemur inn (svona armband eins og maður fær á íslenskum útihátíðum og maður getur ekki tekið af sér nema klippa það af!). Armbandið verður svo að sjálfsögðu að sýna við barinn. Ástandið er ekki bara svona í Hoboken og á Manhattan heldur einnig annars staðar í New York fylki en ég fór einmitt "Up-State NY" fyrir áramót að heimsækja bandaríska ættingja mína. Þá fór ég á bar með Söruh frænku og lentum við í hálfgerðu rifrildi við dyravörðinn. Hann hélt því nefnilega fram að ég væri með falsað skilríki þar sem að landið "Ísland" væri augljóslega EKKI til í alvörunni… 

Einn staður er þó til þar sem enginn er beðinn um skilríki. Það er "gettó" borgin mín Union City! Hér búa nánast bara S-Ameríkumenn og þeir eru augljóslega mun afslappaðri á öllum reglum. Vínbúðin í næestu götu (sem heitir hinu lýsandi nafni Power Liquor) auglýsir meira að segja Cool Alcohol & Free Delivery….

knUS fra US!

Þóra

1sti og 2ar í SpringBreak-i!

Í gær var Fyrsti í Spring Break-i. Þann dag þurfti ég að vinna upp í skóla…. Í dag er Annar í Spring Break-i. Í dag er ég lasin heima….

Frábært!

Saskia, systir hennar Angelien og Steini eru farin aftur til Íslands með sitt hvorar 3 ferðatöskurnar fullar af fötum og raftækjum! Þau voru hér í 10daga og þrátt fyrir að það hafi verið þröngt í litlu holunni í Union City þá var frábært að fá þau í heimsókn. Á föstudaginn var eldaður íslenskur matur (og hlustað á íslenska tónlist að sjálfsögðu!) og svo kíkt á djammið í Hoboken. Laugardagurinn fór svo í "maraþon"-rölt um Soho og um kvöldið út að borða á Olive Garden á Times Square, en Olive Garden er vinsæl ítölsk keðja og einn uppáhalds matsölustaðurinn minn hér úti.

Brilliant helgi sem sagt en lappirnar á mér eru augljóslega ekki vanar svona miklu rölti eftir veturinn þannig að eftir sit ég núna með hælsæri, beinhimnubólgu, kvef og hita…

Næsta föstudag er St. Patrick’s dagur og vonandi verð ég orðin hress þá því að stefnan er tekin á Manhattan. Þar er alltaf árlega haldin stór skrúðganga og mikið djamm í tilefni dagsins. Það fyrsta sem að við Angelien keyptum þegar við komum til USA eftir áramót voru grænir "I’m Irish" stuttermabolir og því kominn tími til að fá loksins að ganga í þeim! En fyrir þá sem ekki vita eru aðeins tvær reglur sem fylgja þessum degi: 1) klæðast grænum fötum og 2) drekka írskan bjór frá því að þú vaknar og þar til þú "hrynur" niður…

Þóra

Síðan komin í lag

Ég trúi varla að það sé kominn mars! Þessi önn hefur verið fljót að líða…

Síðan mín er búin að vera í ólagi í einhverja daga en vinur minn og tölvusnillingurinn Egill er búinn að laga hana svo að ég stefni á að vera dugleg að blogga á næstunni!

Seinustu dögum hef ég að mestu eytt upp í skóla. Nóg að gera í vinnunni sem og í skólanum. Og hvað er ég svo að læra? Tja, hingað til að mestu leyti stjórnunaráfanga en ég ákvað þessa önnina að taka einnig "statistic"-áfanga og hagverkfræði áfanga.

Sá fyrrnefndi heitir "Forcasting and Demand Modelling" og snýst um að safna gögnum og búa svo til spálíkön, t.a.m. til að spá fyrir um eftirspurn eftir ákveðinni vöru í framtíðinni. Slík líkön mætti einnig nota til að spá fyrir um eitthvað allt annað, t.d. "fólksfjölgun" eða "hlutabréfabreytingar".

Áfanginn er í sjálfu sér mjög sniðugur en kennarinn er bara einn sá strangasti sem að ég hef haft. Þar að auki er hann frá Kína og ég á því miður mjög erfitt með að skilja það sem hann segir. Vegna þessa er ég oft út að aka í þessum tímum og veit ekkert um hvað verið er að tala. Það var t.d. ekki fyrr en í seinustu viku, í sjötta fyrirlestri hjá Yang, sem að ég áttaði mig á að sýnidæmið sem hann hefur notað í hverjum einasta fyrilestri heitir EKKI "Rice and Me and ShopRite" heldur "Price of Beef in ShopRite"…….

Saskia systir hennar Angelien og Steini kærastinn hennar eru í heimsókn frá Íslandi þessa dagana. Það er því þröngt í litlu íbúðinni. Þó er alltaf gaman að fá fólk í heimsókn. Þau komu líka færandi hendi með íslenskan fisk, pulsur, bolludeig, nammi og sósur!!

Kærar kveðjur heim! Ég sakna ykkar allra…

…og það meira í dag en í gærCry

Þóra

p.s. Berglindin mín fær sérstakar kveðjur, enda er hún duglegust að hafa samband! Kiss