Hverjar eru líkurnar?

Strætóinn minn; strætó 22, gengur á milli Hoboken og Union City. Hann er ekki bara eini strætóinn sem ég get tekið í skólann heldur er hann líka eini strætóinn í Jersey sem keyrir alls EKKI eftir áætlun…

Ég hef tekið þennan strætó á hverjum degi síðan ég flutti í nýju íbúða og samkvæmt "áætluninni" er þetta góður díll. Hann á nefnilega að ganga á 15 mín fresti. Ég hef hins vegar aldrei beðið eftir honum í minna en 25 mín, oftast bíð ég í rúman hálftíma og stundum í klukkutíma!

Þrátt fyrir að hafa kennt tölfræði og líkindareikning með góðum árangri í MS get ég ekki útskýrt líkurnar á að lenda alltaf í þessari bið….

….nema jú með minni "einskæru" heppni!

3 Responses to “Hverjar eru líkurnar?”


  1. 1 soley Feb 24th, 2006 at 5:44 pm

    Í dag beið ég frá 7:30 til 10:00 eftir lestinni.. þegar hún byrjaði svo að ganga.. komst ég aldrei inn af því hún var náttúrlega troðinn af fólki.. kl 10:30 komst ég inn.. mætt í vinnunni sem sagt kl 11:30.. gaman gaman.. en þetta var reyndar algjör undartekning í dag

  2. 2 Mamma Feb 25th, 2006 at 1:09 pm

    Er þetta ekki bara spruning um staðalfrávik? Þú ert örugglega alltaf a.m.k. tveimur (ef ekki fleiri) staðalfrávikum frá uppgefinni tímalengd biðtíma. Þú veist að það er hægt að rökstyðja allt með hjálp tölfræðinnar! Vertu bara í hlýju úlpunni og ullarfötunum sem við fjárfestum í þegar þú komst heim um jólin.

  3. 3 Eg sjalf Mar 7th, 2006 at 7:35 pm

    Gaeti bara verid…Thad ma skyra margt med stadalfraviki.. ef ekki barasta ALLT ef marka ma tolfraedikennarann minn! :) P.s. thessi sida er buin ad vera i sma olagi en eg LOFA bloggi i kvold

Leave a Reply