THE Road Trip

Jæja, nú er mín barasta komin aftur frá Kanada. Eftir maraþon akstur dauðans! Við Angelien leigðum bíl og til þess að spara pening settum við bara einn ökumann á trygginguna. Grey Angelien þurfti því að keyra alla leiðina, en mín fékk að sjá um "maps & music" (sem að í raun er ekki síður mikilvægur þáttur við slíkan akstur!). Ferðin tók 7 tíma til Montreal og svo 9 tíma til baka, enda ákváðum við þá bæði að stoppa og fá okkur að borða, sem og að við lentum í biðröð við landamæri í rúman hálftíma! Þegar við skiluðum bílaleigubílnum varð bílaleigugaurinn hálf hissa á svipinn, enda hefur hann ef til vill ekki grunað að við tvær stelpunar myndum keyra 1000 mílur á aðeins 3 dögum!

Ökuferðirnar einkenndust af blaðri (enda undirrituð og vinkona hennar ekki þekktar fyrir að þaga lengi í einu…) og bensínskorti! Í byrjun leiðarinnar eru nefnilega endalaust margir McDonalds staðir og bensínstöðvar en í "up-state" NY er ekkert! Þar er ekki einu sinni gsm samband og vorum við vorum því skíthræddar að keyra og farnar að ímynda okkur að við myndum neyðast til þess að labba yfir landamærin í -20 stiga frosti með tómar gosflöskur í leit að bensíni. Það gerðist þó sem betur fer ekki! Smile

Kanada er kalt land, kalt, kalt, KALT! Ég er ein mesta kuldaskræfa sem til er og leiðinlegastu dagarnir á Íslandi eru fyrir mig "sköfudagar". Ég hata að standa úti í 10 mín og skafa af bílnum og sitja svo inni í bílnum í aðrar 10 mín frjósandi úr kulda að bíða eftir að hitinn "kikki inn". Í Kanada er manni ekki þannig kalt í 20 mín heldur ALLTAF! Í Montreal var nefnilega -23C frost og hefur mér aldrei verið jafn kalt á ævinni. Mér var það kalt að ég passaði mig á því að anda með nefinu, af ótta við að lungun á mér gæfu upp öndina ef ég opnaði munninn!

Í Montreal er samt ekki bara kuldi, þetta er mjög svo falleg borg og mjög margar flottar byggingar, flestar þeirra líklega verið reistar í tilefni Ólympíuleikana sem haldnir voru þar fyrir nokkrum árum.

Í þetta skipti voru engar myndir teknar enda voguðum við okkur sjaldan út úr bílnum vegna kulda. Við keyrðum þó töluvert um og ég stefni á að fara þangað aftur seinna, að vori, sumri eða hausti, og skoða borgina betur.

Nú fer óðum að styttast í Spring Break hjá mér og þar sem að enginn hefur boðað komu sína í heimsókn (boðið stendur þó enn til boða!) þá býst ég við að vera bara menningarleg og nota tímann í að skoða söfn á Manhattan og jafnvel læra! Þetta kemur þó allt í ljós þegar nær dregur!

Með kveðju,

Þóran

 

 

5 Responses to “THE Road Trip”


  1. 1 soley Feb 22nd, 2006 at 12:39 pm

    ég var buin ad bjoda ter ad koma i heimsokn i springbreak.. lofa miklum hita, allavegana 20 gradum i plus… og fallegu gestaherbergi

  2. 2 Berglind Feb 22nd, 2006 at 4:13 pm

    Það er gott að þú sért komin heil á húfi frá þessu! Eins gott líka að þú keyptir þér hlýja puma úlpu áður en þú fórst út aftur! Hún hefur líklega komið vel að notum.

  3. 3 Eg sjalf Feb 22nd, 2006 at 7:17 pm

    Soley: Jamm, eg vildi OSKA ad eg kaemist! Treysti bara ekki gestaherberginu sidan i fyrra ;) Berglind: Hef ekki farid ur dunulpunni thessar 6 vikur sem eg hef verid her.. nema rett til ad sofa ;)

  4. 4 halli Feb 23rd, 2006 at 2:33 am

    Skil vel hvernig þér líður í ofsakuldanum. Kæmi í heimsókn ef ekki væri fyrir peningaskort, en þú ert líka velkomin hingað til Tékklands, guð má vita að allt er ódýrara hér (bjór á bar 50 kall!?!)

  5. 5 Eg sjalf Feb 23rd, 2006 at 2:48 pm

    Halli: bjor a 50 kjell? Er tha ekki flugid hingad bara a 1000 kjell? Thu hlytur nu ad hafa efni a thvi! :)

Leave a Reply