Sjónvarps-maraþon

Bandaríkin eru land maraþon-hátíðanna.

Seinasta sunnudag var það Superball. Vinur hennar Angelien kom í heimsókn og gerðum við þrjú heiðarlega tilraun til að horfa á leikinn. Okkur fannst í raun skylda að horfa enda hefur verið fjallað um lítið annað í fjölmiðlum seinustu daga. Leikurinn var frá klukkan 6 til 10. Hvaða voða maraþonleikur er það?! Þannig að við gáfumst fljótt upp og enduðum á að horfa á annað maraþon… "100 fallegasta fólkið í Hollywood". Það var samt ekki mikið meira spennandi og frekar fyrirsjáanlegt. "Par Bandaríkjanna" Brad og Angelina nr. 1 og 2…

Í kvöld eru það svo Grammy verðlaunin. Ég hef sjaldan þolinmæði til að horfa á svona maraþon heima á Íslandi en hér eru þessar hátíðir þó a.m.k. á eðlilegum sjónvarpstíma. Þannig að í kvöld var barasta eldað þetta fína pasta og sest fyrir framan sjónvarpið. Alltaf stuð í litlu íbúðinni í Union City!

Spurning samt um að standa upp úr sófanum um helgina og gera eitthvað að viti?!  Embarassed

Þóra

 

2 Responses to “Sjónvarps-maraþon”


  1. 1 Helga Feb 9th, 2006 at 11:21 am

    Já, það hlýtur að vera munur að geta horft á þetta á kristilegum tíma! Ég man þegar maður var að halda sér vakandi yfir óskarsverðlaununum til sex um morguninn, leggja sig svo í klukkutíma og fara í skólann. Sem betur fer stundar maður ekki svoleiðis vitleysu lengur :) Hvernig gengur annars kennslan?

  2. 2 Eg sjalf Feb 9th, 2006 at 2:37 pm

    Eg gat aldrei vakad til 6 yfir thessu a Islandi! Eg reyndi alltaf mitt besta en sofnadi svo alltaf kl.5 og missti af OLLUM bestu verdlaununum! :( Jaeja, tharf ad fara ad kenna, eg lofa ad segja fra kennslunni fljotlega! :)

Leave a Reply